Doktorsvörn í menntavísindum – Helgi Þorbjörn Svavarsson

Aðalbygging
Helgi Þorbjörn Svavarsson ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild kennslu- og menntunarfræði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Vörnin fer fram föstudaginn 2. október 2026 kl. 13.00 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands í Reykjavík.
Ritgerðin ber heitið Forysta til félagslegs réttlætis til handa nemendum af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra í íslenskum skólum.
Helgi Þorbjörn Svavarsson lauk blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995, diplómanámi í hljómsveitarstjórn, stjórnun og forystu við Tónlistarháskólann í Noregi árið 1998 og M.Ed.-prófi frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2013. Hann hóf starfsferil sinn sem tónmennta- og hljóðfærakennari, kórstjóri og stjórnandi lúðrasveita á Íslandi og í Noregi. Meðal annars stjórnaði hann kórum Menntaskólans á Akureyri og Flensborgarskóla, auk Lúðrasveitar Reykjavíkur og hljómsveita í Noregi. Árið 1999 varð Helgi skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og gegndi starfinu í níu ár. Frá 2009 starfaði hann við fullorðinsfræðslu, fyrst hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og síðar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, þar sem hann var tengiliður Norræns tengslanets um nám fullorðinna. Hann sat einnig í stjórn Leiknar, samtaka fræðsluaðila á Íslandi, og var formaður samtakanna í fimm ár. Frá ársbyrjun 2023 hefur Helgi starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og sinnt stundakennslu við Háskólann á Akureyri. Samhliða því hefur hann starfað sem hljóðfæraleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, komið fram á tónleikum og í leiksýningum og tekið þátt í upptökum. Helgi er kvæntur Ernu Mary Þorsteinsdóttur, starfsmanni Lífeyrissjóðsins Stapa. Þau búa á Akureyri og eiga þrjú uppkomin börn: Þóreyju Köru, Svövu Guðnýju og Tjörva Leó.
Um doktorsritgerðina
Doktorsverkefnið byggir á fjórum tengdum rannsóknum sem skoða hvernig skólastjórnendur á Íslandi takast á við samspil samfélagslegra strúktúra og áhrifavalds (agency) til að efla félagslegt réttlæti fyrir nemendur af erlendum uppruna. Fræðilegur grunnur verkefnisins er gagnrýnin raunhyggja (critical realism), einkum kenningar Margaret Archer um gagnvirkt samband strúktúra og áhrifavalds. Niðurstöðurnar sýna að lýðræðisleg gildi, jafnréttishugsjónir og mikið samfélagslegt traust styðja við forystu í þágu félagslegs réttlætis. Á móti virka staðalímyndir um „venjulega“ nemandann, eintyngisviðhorf, óskýr stefnumótun, takmarkað fjármagn, skortur á fagþekkingu og neikvæð viðhorf til nemenda af erlendum uppruna sem hamlandi þættir. Stjórnendur sem tóku þátt í rannsókninni byggðu starf sitt á sterkri skuldbindingu við félagslegt réttlæti, miklum væntingum til allra nemenda, baráttuhugsun og raunsærri nálgun á takmarkanir. Þeir lögðu áherslu á að skapa sameiginlega framtíðarsýn, byggja upp traust og efla þekkingu starfsfólks á fjölmenningarlegum málefnum. Jafnframt dreifðu þeir forystu innan skólasamfélagsins og innleiddu starfshætti sem endurspegluðu fjölbreytileika nemenda og stuðluðu að auknu jafnrétti og þátttöku. Rannsóknin bendir þó til þess að möguleikar stjórnenda til að hafa áhrif séu verulega skilyrtir af kerfislægum þáttum, svo sem veikri stefnumótun, ófullnægjandi fjármögnun og skorti á markvissri áherslu á félagslegt réttlæti innan stjórnkerfis menntunar. Stjórnendur starfa því oft í ákveðnu tómarúmi þegar kemur að því að skapa hagstæð skilyrði fyrir félagslegt réttlæti. Gildi rannsóknarinnar felst í þeirri innsýn sem hún veitir í hvernig samfélagslegir strúktúrar og forysta móta möguleika skóla til að bæta námslega og félagslega stöðu innflytjendanemenda og styðja við þróun menntastefnu og forystu í fjölmenningarlegu samhengi.
Andmælendur: Dr. Ann Elisabeth Gunnulfsen, dósent við the University of Oslo, og dr. Nihad Bunar, prófessor við Stockholm University.
Leiðbeinendur: Friðgeir Börkur Hansen, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, og Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
Doktorsnefnd: Auk leiðbeinenda sat Lars Anders Kulbrandstad, prófessor emeritus við Inland Norway University of Applied Sciences í doktorsnefnd nemanda.
Athafnarstjóri: Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent við Deild kennslu- og menntunarfræði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Öll eru velkomin.
Helgi Þorbjörn Svavarsson ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild kennslu- og menntunarfræði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Vörnin fer fram föstudaginn 2. október 2026 kl. 13.00 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands í Reykjavík. Ritgerðin ber heitið Forysta til félagslegs réttlætis til handa nemendum af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra í íslenskum skólum. Helgi Þorbjörn Svavarsson lauk blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995, diplómanámi í hljómsveitarstjórn, stjórnun og forystu við Tónlistarháskólann í Noregi árið 1998 og M.Ed.-prófi frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2013. Hann hóf starfsferil sinn sem tónmennta- og hljóðfærakennari, kórstjóri og stjórnandi lúðrasveita á Íslandi og í Noregi. Meðal annars stjórnaði hann kórum Menntaskólans á Akureyri og Flensborgarskóla, auk Lúðrasveitar Reykjavíkur og hljómsveita í Noregi. Árið 1999 varð Helgi skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og gegndi starfinu í níu ár. Frá 2009 starfaði hann við fullorðinsfræðslu, fyrst hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og síðar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, þar sem hann var tengiliður Norræns tengslanets um nám fullorðinna. Hann sat einnig í stjórn Leiknar, samtaka fræðsluaðila á Íslandi, og var formaður samtakanna í fimm ár. Frá ársbyrjun 2023 hefur Helgi starfað sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og sinnt stundakennslu við Háskólann á Akureyri. Samhliða því hefur hann starfað sem hljóðfæraleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, komið fram á tónleikum og í leiksýningum og tekið þátt í upptökum. Helgi er kvæntur Ernu Mary Þorsteinsdóttur, starfsmanni Lífeyrissjóðsins Stapa. Þau búa á Akureyri og eiga þrjú uppkomin börn: Þóreyju Köru, Svövu Guðnýju og Tjörva Leó.Um doktorsritgerðina Doktorsverkefnið byggir á fjórum tengdum rannsóknum sem skoða hvernig skólastjórnendur á Íslandi takast á við samspil samfélagslegra strúktúra og áhrifavalds (agency) til að efla félagslegt réttlæti fyrir nemendur af erlendum uppruna. Fræðilegur grunnur verkefnisins er gagnrýnin raunhyggja (critical realism), einkum kenningar Margaret Archer um gagnvirkt samband strúktúra og áhrifavalds. Niðurstöðurnar sýna að lýðræðisleg gildi, jafnréttishugsjónir og mikið samfélagslegt traust styðja við forystu í þágu félagslegs réttlætis. Á móti virka staðalímyndir um „venjulega“ nemandann, eintyngisviðhorf, óskýr stefnumótun, takmarkað fjármagn, skortur á fagþekkingu og neikvæð viðhorf til nemenda af erlendum uppruna sem hamlandi þættir. Stjórnendur sem tóku þátt í rannsókninni byggðu starf sitt á sterkri skuldbindingu við félagslegt réttlæti, miklum væntingum til allra nemenda, baráttuhugsun og raunsærri nálgun á takmarkanir. Þeir lögðu áherslu á að skapa sameiginlega framtíðarsýn, byggja upp traust og efla þekkingu starfsfólks á fjölmenningarlegum málefnum. Jafnframt dreifðu þeir forystu innan skólasamfélagsins og innleiddu starfshætti sem endurspegluðu fjölbreytileika nemenda og stuðluðu að auknu jafnrétti og þátttöku. Rannsóknin bendir þó til þess að möguleikar stjórnenda til að hafa áhrif séu verulega skilyrtir af kerfislægum þáttum, svo sem veikri stefnumótun, ófullnægjandi fjármögnun og skorti á markvissri áherslu á félagslegt réttlæti innan stjórnkerfis menntunar. Stjórnendur starfa því oft í ákveðnu tómarúmi þegar kemur að því að skapa hagstæð skilyrði fyrir félagslegt réttlæti. Gildi rannsóknarinnar felst í þeirri innsýn sem hún veitir í hvernig samfélagslegir strúktúrar og forysta móta möguleika skóla til að bæta námslega og félagslega stöðu innflytjendanemenda og styðja við þróun menntastefnu og forystu í fjölmenningarlegu samhengi. Andmælendur: Dr. Ann Elisabeth Gunnulfsen, dósent við the University of Oslo, og dr. Nihad Bunar, prófessor við Stockholm University. Leiðbeinendur: Friðgeir Börkur Hansen, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, og Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Doktorsnefnd: Auk leiðbeinenda sat Lars Anders Kulbrandstad, prófessor emeritus við Inland Norway University of Applied Sciences í doktorsnefnd nemanda. Athafnarstjóri: Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent við Deild kennslu- og menntunarfræði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Öll eru velkomin.
