Skip to main content

Doktorsvörn í iðnaðarverkfræði - Nashmin Yeganeh

Doktorsvörn í iðnaðarverkfræði - Nashmin Yeganeh - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. september 2026 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/64556276513

Doktorsefni:
Nashmin Yeganeh

Heiti ritgerðar:
Þróun klæðanlegs titringssnertitækis til miðlunar upplýsinga í rauntíma 

Andmælendur:
Dr. Joanna Bergström, dósent við Tölvunarfræðideild Kaupmannahafnarháskóla, Danmörku
Dr. Delphine Chadefaux, dósent við Institut de Biomécanique Humaine Georges Charpak, Université Sorbonne Paris Nord, Frakklandi

Leiðbeinandi:
Dr. Rúnar Unnþórsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Árni Kristjánsson, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Jeremy Marozeau, sérfræðingur við grunntaugavísindadeild Háskólans í Genf, Sviss

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Sigrún Nanna Karlsdóttir, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands

Ágrip:
Í stafrænu umhverfi þar sem upplýsingamagn fer sífellt vaxandi er þörf á öðrum leiðum til upplýsingamiðlunar þegar sjón- og heyrnarskyn eru ofhlaðin, notkun þeirra takmörkuð eða þau ekki tiltæk. Í þessari rannsókn er titringssnertimiðlun um framhandlegg rannsökuð sem skynjunarlega skilvirk leið til miðlunar upplýsinga í klæðanlegum viðmótum manns og tölvu. Með notkun sérhannaðs snertiskynstækis sem fest er á framhandlegg og stýrðra sálfræðilegra skynjunartilrauna eru þrír grundvallarþættir kóðunar upplýsinga með titringssnertingu rannsakaðir með kerfisbundnum hætti: rúmupplausn, tíðni og líffærafræðileg staðsetning, auk tímalegrar uppbyggingar. Niðurstöðurnar varpa ljósi á helstu skynjunarfræðilegar takmarkanir og sýna að áreiðanleg titringssnertimiðlun er að verulegu leyti háð bili milli titringsgjafa, staðsetningu örvunar og þá sérstaklega tímalegri uppbyggingu snertimynstra. Örvun í röð leiðir til marktækt betri greiningar en samtímis örvun, en jafnframt má auka nákvæmni skynjunar enn frekar með viðeigandi tímalengd milli áreita. Frammistaða batnar einnig við endurtekna útsetningu fyrir áreitunum, sem undirstrikar aðlögunarhæfni snertiskynkerfis mannsins. Í heild leggja niðurstöðurnar grunn að skynjunarmiðuðum hönnunarviðmiðum fyrir klæðanlega snertitækni og sýna fram á að unnt er að kóða og miðla flóknum upplýsingum á skilvirkan hátt með skipulögðum titringsmynstrum á framhandlegg. Rannsóknin skapar þannig grundvöll fyrir þróun næstu kynslóðar hjálpartækni, kerfa fyrir skynstaðgöngu, hljóðlausra samskiptaviðmóta og yfirgripsmikilla sýndar- og viðbótarveruleikakerfa (VR/AR). Niðurstöðurnar undirstrika jafnframt möguleika snertiskyns sem raunhæfrar en enn vannýttrar leiðar til upplýsingamiðlunar í samskiptum manns og tölvu.

Um doktorsefnið:
Nashmin Yeganeh er doktorsnemi í iðnaðarverkfræði og rannsakandi við ACUTE-rannsóknarstofuna við Háskóla Íslands. Hún er með B.Sc.- og M.Sc.-gráðu í vélaverkfræði og hefur auk þess fjögurra ára starfsreynslu sem verkfræðingur úr atvinnulífinu. Nashmin hóf doktorsnám árið 2021 undir leiðsögn Rúnars Unnþórssonar prófessors, með Árna Kristjánsson prófessor sem meðleiðbeinanda. Þverfaglegar rannsóknir hennar liggja á mörkum verkfræði, skynjunarfræði og samskipta manns og tölvu og beinast að því hvernig nýta megi snertiskyn sem skilvirka leið til upplýsingamiðlunar. Rannsóknir hennar snúa einkum að klæðanlegum snertiskynskerfum sem fest eru á framhandlegg og miðlun upplýsinga með titringssnertingu. Markmiðið er að stuðla að þróun innsæislegra, aðgengilegra og mannhverfra aðferða til samskipta við tækni. Samhliða rannsóknarstörfum sínum er Nashmin móðir tveggja dætra og hefur tekist á við þær áskoranir sem fylgja því að stunda doktorsnám samhliða stækkandi fjölskyldu. Eiginmaður hennar, Reza, sem starfar sem nýdoktor við Háskóla Íslands, hefur veitt henni mikilvægan stuðning í gegnum doktorsnámið. Fæðing annarrar dóttur þeirra um mitt doktorsnámið hafði í för með sér bæði nýjar áskoranir og nýtt, dýrmætt sjónarhorn og varð jafnframt mikilvæg uppspretta hvatningar, seiglu og styrks á námsferlinum.

 

 

Doktorsefnið Nashmin Yeganeh

Doktorsvörn í iðnaðarverkfræði - Nashmin Yeganeh