Doktorsvörn í eðlisfræði - Vyshnav Mohan

Askja
Stofa N-132
Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/68070331503
Doktorsefni:
Vyshnav Mohan
Heiti ritgerðar:
Heilmyndun og tilkomið tímarúm
Andmælendur:
Dr. Johanna Erdmenger, prófessor við eðlis- og stjörnufræðideild Würzburgháskóla, Þýskalandi
Dr. Vijay Balasubramanian, prófessor við eðlis- og stjörnufræðideild Pennsylvaníuháskóla, Bandaríkjunum
Leiðbeinandi:
Dr. Lárus Thorlacius, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands (aðalleiðbeinandi)
Einnig í doktorsnefnd:
Dr. David Lowe, prófessor við eðlisfræðideild Brownháskóla, Rhode Island, Bandaríkjunum
Dr. Friðrik Freyr Gautason, lektor við stærðfræðideild Southamptonháskóla, Bretlandi
Dr. Valentina Giangreco M. Puletti, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Watse Sybesma, lektor við Nordita (norrænu stofnunina í kennilegri eðlisfræði), Stokkhólmi, Svíþjóð Dr. Lárus Thorlacius, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands
Doktorsvörn stýrir:
Dr. Birgir Hrafnkelsson, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar HÍ
Ágrip:
Svarthol eru fræðilegar rannsóknarstofur sem veita einstaka innsýn í ósamræmið sem virðist vera milli þyngdarfræði og skammtafræði. Í ritgerðinni eru skammtafræðilegir eiginleikar svarthola kannaðir með vísun til þyngdarfræðilegrar heilmyndunar og aðferðum skammtaupplýsingafræði og algebrulegrar skammtasviðsfræði. Virkjaalgebrur eru ákjósanlegur fræðilegur vettvangur til að útskýra tímarúm og þyngdaráhrif sem tilkomin úr gangverki undirliggjandi skammtakerfis. Í ritgerðinni eru sett fram nauðsynleg skilyrði sem slíkt skammtakerfi þarf að uppfylla. Einnig er sýnt hvernig lýsa megi áhrifum þyngdarskammtafræði á tímarúm sístæðs svarthols með því að innleiða tilteknar skammtaleiðréttingar í hálfskammtaða virkjaalgebru kerfisins. Niðurstöðuna má nálga með von Neumann algebru af gerð I sem hefur vídd í samræmi við Bekenstein-Hawking óreiðu svartholsins með lograleiðréttingum. Sambærilegar skammtaleiðréttingar leiða einnig til mettunar skammtafræðilegs flækjustigs svarthols með tíma þegar flækjustigið er skilgreint útfrá rúmmáli ákveðins sniðs í gegnum tímarúm svartholsins. Hliðstæða við annað lögmál varmafræðinnar, sem gildir um flækjustigið, er notuð til að leiða út nýja sérgildissetningu fyrir svarthol. Skammtaleiðréttingar gegna mögulega lykilhlutverki í fræðilegri lýsingu á þyngdarhruni. Í því samhengi gæti svonefnd svartskel, sem kemur úr strengjafræði, verið endastöð þyngdarhruns í stað svarthols. Í ritgerðinni er borin saman varmafræði svartskelja og svarthola og sýnt að í kórsafni eru svartskeljar ráðandi á ákveðnu hitastigsbili.
Um doktorsefnið:
Vyshnav Mohan er frá Mannar í Keralahéraði á Indlandi og hóf þar skólagöngu sína. Hann lauk bakkalársgráðu (BS) og meistaragráðu (MS) í eðlisfræði frá Indian Institute of Science í Bengaluru. Árið 2022 hóf hann doktorsnám í kennilegri eðlisfræði við Háskóla Íslands. Þegar Vyshnav er ekki að stunda eðlisfræði, knúinn áfram af koffíni í óhófi, ver hann tíma sínum í að sofa, spila á fiðlu og veita óumbeðna gagnrýni á kvikmyndir og sjónvarpsþætti.
Doktorsefnið Vyshnav Mohan
