Skip to main content

Doktorsvörn í eðlisfræði - Alexia Nix

Doktorsvörn í eðlisfræði - Alexia Nix - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. ágúst 2026 14:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/67917113047

Doktorsefni:
Alexia Nix

Heiti ritgerðar:
Þyngdarfræði, Heilmyndun og bjagaðar skammtakenningar 

Andmælendur:
Dr. Joseph A. Minahan, prófessor við stærðfræðideild, Uppsala Háskóli, Svíþjóð
Dr. Silvia Penati, prófessor við eðlisfræðideild Milano-Bicocca háskóla í Ítalíu

Leiðbeinandi:
Dr. Valentina Giangreco M. Puletti, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Friðrik Freyr Gautason, lektor í strengjafræði við stærðfræðideild Háskólans í Southampton, Bretlandi (aðalleiðbeinandi)
Dr. Watse Sybesma, lektor í kennilegri eðlisfræði við NORDITA háskóla í Svíþjóð
Dr. Lárus Thorlacius, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Konstantin Zarembo, prófessor í kennilegri eðlisfræði við raunvísindadeild NBI og NORDITA í Danmörku og Svíþjóð

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Birgir Hrafnkelsson, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar HÍ 

Ágrip:
Í ritgerð þessari rannsökum við þyngdarfræði með tveimur aðferðum, heilmyndunarkenningunni og orkuþinsummyndunum. Í fyrri hluta ritgerðarinnar notum við heilmyndunarkenninguna til þess að skoða ofursamhverfar Wilson lykkjur í hornræknum og óhornræknum kvarðakenningum. Þessar Wilson lykkjur má ákvarða sem kórsummur strengs eða M2-himnu í tilsvarandi tímarúmi. Við leggjum áherslu á fyrstu leiðréttinguna við sígilda nálgun og þróuð eru ný tól til slíkra reikninga. Þessi tól gera okkur kleift að sannreyna frekar samsvörun þyngdarfræði og kvarðakenninga í fjölda af dæmum. Í seinni hluta ritgerðarinnar smíðum við d-víða ummyndunarvirkja myndaðan úr orku-skriðþungaþininum til að sýna fram á nýjar tengingar við þyngdarfræðikenningar og strengjafræði. Auk þess notum við þessar tengingar til þess að leiða út áður óþekktar jöfnur fyrir raðir ofurrúmkynja falla.

Um doktorsefnið:
Alexia lauk grunnnámi í eðlisfræði við Háskólann á Krít í Grikklandi árið 2020. Eftir það flutti hún til Svíþjóðar þar sem hún lauk meistaranámi í kennilegri eðlisfræði við Uppsala Háskóla. Árið 2022 hóf hún doktorsnám í eðlisfræði við Háskóla Íslands undir handleiðslu Friðriks Freys Gautasonar.

Doktorsefnið Alexia Nix

Doktorsvörn í eðlisfræði - Alexia Nix