Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Málþingið, Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu, fer fram mánudaginn 4. maí kl. 15 - 16.30 í hátíðarsalnum í aðalbyggingu HÍ. Málþingið verður einnig í streymi.
Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við fræðafólk deildar menntunar og margbreytileika og deildar faggreinakennslu við Menntavísindasvið HÍ.
Að undanförnu hefur svokallað „bakslag“ borið á góma í umræðu um jafnréttismál. Í sinni einföldustu mynd birtist það í fjölmiðlum, poppmenningu, stjórnmálum og markaðssetningu sem kerfislægar orðræður. Þar er sá árangur sem náðst hefur varðandi kynjajafnrétti, réttindi hinsegin fólks, fólks af erlendum uppruna og fleiri samfélagshópa gerður tortryggilegur. Í bakslagi eru framfarir á sviðum jafnréttis skilgreindar sem ógn eða byrði og sá hópur sem barist hefur fyrir jafnréttinu er jafnan gerður ábyrgur. Hérlendis hefur bakslagið ekki síst birst í tengslum við kennslu, skólastarf og vinnu með ungu fólki. Á þessi málþingi verður fjallað um þessar ólíku hliðar og gefin dæmi um kerfisbundin mynstur sem vinna gegn jafnrétti í íslensku menntakerfi og hvernig standa má vörð um þau framfaraskref sem hafa verið stigin á síðustu árum.
Dagskrá
Kl. 15:00 - Norræna menntahefðin í uppnámi: Bakslag í menntakerfum - Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor og forseti deildar menntunar og margbreytileika við Menntavísindasvið HÍ.
Kl. 15:15 - Evrópumethafi í kynjaójafnrétti? Af drengjum og öðrum nemendum í skólakerfinu. Íris Ellenberger, prófessor og Katrín Ólafsdóttir, lektor báðar við deild faggreinakennslu við Menntavísindasvið HÍ.
Kl: 15:30 – In a cycle of racial progress and institutional resistance - Elizabeth Lay, doktorsnemi og aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði HÍ.
Kl: 15:45 - Algrímur, bakslag og kynjakerfið - Þórður Kristinsson, doktorsnemi við Menntavísindasvið og framhaldsskólakennari.
16:00 - Pallborðsumræður
16:30 - Málþingi slitið - Kolbrún Þ. Pálsdóttir.
Verið öll velkomin.
Málþingið, Bakslag í jafnrétti: Birtingarmyndir í skólakerfinu, fer fram mánudaginn 4. maí kl. 15 - 16.30 í hátíðarsalnum í aðalbyggingu HÍ. Málþingið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við fræðafólk Deildar mentunar og margbreytileika og Deildar faggreinakennslu við MVS.
