Alþjóðatorgið 2024
Hvenær
7. nóvember 2024 11:30 til 13:30
Hvar
Háskólatorg
Nánar
Alþjóðatorgið er hluti af Alþjóðadögum HÍ dagana 6.-8. nóvember
Á Alþjóðatorginu gefst nemendum kostur á að kynna sér ótal tækifæri á skiptinámi, starfsþjálfun og styttri námsdvölum, auk náms á eigin vegum.
Skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til taks og svara spurningum. Starfsfólk Alþjóðasviðs auk starfsfólks sviða og deilda innan HÍ verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um spennandi tækifæri á námsdvöl erlendis.
Starfsfólk Háskólans getur auk þess kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+.
Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu.