Alþjóðadagar 4. - 6. nóvember
Háskóli Íslands
Á Alþjóðadögum sem standa yfir dagana 4. - 6. nóvember verður boðið upp á spennandi fyrirlestra, kynningar á möguleikum á námi erlendis, barsvar, tónlist og margt fleira.
Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim. Kynningar á skiptinámi, sumarnámi og starfsþjálfun, opnar öllum nemendum HÍ, verða í gangi alla dagana. Upplýsingastofa um nám erlendis verður með erindi um nám erlendis á eigin vegum og möguleikar á Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkjum fyrir starfsfólk verða kynntir. Þá geta nemendur kynnt sér háskólanám í Svíþjóð og spjallað við fyrrum skiptinema.
ALÞJÓÐATORGIÐ
Miðvikudaginn 6. nóvember er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.00. Þar gefst nemendum kostur á að kynna sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum. Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. Svið og deildir háskólans og starfsfólk Skrifstofu alþjóðasamskipta verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um námsdvöl erlendis. Starfsfólk háskólans getur kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+.
Hljómsveitin Syntagma Rebetiko lífgar upp á stemninguna með grískri kaffihúsatónlist. Hljómsveitina skipa þau Ásgeir Ásgeirsson, bouzouki, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðla, Margrét Arnardóttir, harmonikka og Alexandra Kjeld, bassi.
DAGSKRÁ ALÞJÓÐADAGA
Dagskráryfirlit
4. NÓVEMBER
12.00-12.30
Óteljandi tækifæri til starfsþjálfunar erlendis
HT-300
12.00-13.00
Námsdvöl erlendis - Pop-up kynning á Menntavísindasviði
Stakkahlíð
12.00-15.00
Study in Sweden – Ellefu sænskir háskólar kynna námsmöguleika
Háskólatorg
13.20-14.00
Endalausir möguleikar - Kynning á skiptinámi og sumarnámi
HT-104
14.00-14.40
Erasmus+ ferðastyrkir fyrir starfsfólk HÍ
HT-300
5. NÓVEMBER
12.00-12.40
Exchange Studies and Summer Courses Abroad – A presentation in English
HT-300
12.00-13.00
Námsdvöl erlendis - Pop-up kynning á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
Tæknigarður
12.30-13.10
Endalausir möguleikar - Kynning á skiptinámi og sumarnámi
HT-104
15.00-16.00
Nám og þjálfun erlendis á eigin vegum - Kynning frá Rannís
HT-103
16.30-17.30
Tübingen 20 ára: stutt skiptinám fyrir tungumálanema – kostir og gallar?
Veröld - fyrirlestrarsalur
20:00
Alþjóðlegt barsvar
Curious Bar – Hafnarstræti 4
6. NÓVEMBER
11.30-13.00
ALÞJÓÐATORGIÐ – Kynning á námi erlendis, tónlist, alþjóðlegt matar- og drykkjarsmakk og fleira
Háskólatorg
13.00-13.30
Endless Opportunities for Traineeships Abroad - A presentation in English
HT-300
15.00-15.40
Endalausir möguleikar - Kynning á skiptinámi og sumarnámi
HT-104
16.00-17.00
Spjall við fyrrum skiptinema
Stúdentakjallarinn
21.00
Lokapartý Alþjóðadaga – Hljómsveitin Les Métèques
Stúdentakjallarinn
Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.