Almyrkvi á sólu við Háskóla Íslands

Hvenær
12. ágúst 2026 17:00 til 18:00
Hvar
Aðalbygging
Skeifan
Nánar
Aðgangur ókeypis
Stjarneðlisfræðingar og eðlisfræðingar við Háskóla Íslands bjóða áhugasömum að njóta sólmyrkvans í skeifunni við Aðalbyggingu en þar munu þeir reiða fram fróðleik og svara spurningum sem kunna að brenna á fólki um þetta náttúrufyrirbrigði.
Hvar: Í Skeifunni (grasflötinni) fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Hvenær: Dagskráin hefst kl. 17:00, hvernig sem viðrar.
(Hlutamyrkvi hefst kl. 16:47 og almyrkvi kl. 17:48.)
Hver: Þú! Einnig verða stjörnufræðingar og eðlisfræðingar á staðnum til að svara spurningum um sólmyrkvann.
Sólmyrkvinn frá Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands með stjörnufræðingum og eðlisfræðingum.
