Að auka gæði kennslu: Reynsla kennara af því að nýta myndupptökur

Saga, Stofa S-261
Ráðstefnan Að auka gæði kennslu: Reynsla kennara af því að nýta myndupptökur fer fram fimmtudaginn 13. nóvember 2025 kl. 13:00 -16:00 í stofu S-261 í Sögu, Hagatorgi.
Ráðstefnan er annar viðburður Efst á baugi, fyrirlestraraðar Menntavísindasviðs 2025-2026 þar sem rannsakendur úr fjölbreyttum áttum innan Menntavísindasviðs stíga á stokk og veita innsýn í kraumandi rannsóknir sínar innan menntavísinda.
Kynntar verða helstu niðurstöður rannsóknar- og þróunarverkefnisins: Sjálfbær starfsþróun til að auka gæði náms og kennslu (SÆG) sem beinist að kennsluháttum í íslensku, náttúrufræði og stærðfræði á mið- og unglingastigi grunnskóla. Sextán kennarar í Reykjavík og Múlaþingi hafa rýnt saman í eigin kennslu með hliðsjón af greiningarramma PLATO í eitt skólaár með það að markmiði að bæta gæði kennslu.
Rannsóknin er styrkt af Menntarannsóknasjóði.
Dagskrá:
Opnunarávarp - Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs
13:00-13:15
Setning og kynning á SÆG-verkefninu: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið
13:15-14:00
Helstu niðurstöður SÆG-verkefnisins: Berglind Gísladóttir dósent, Edda Elísabet Magnúsdóttir lektor, Helga Birgisdóttir lektor og Svava Pétursdóttir dósent, allar við Menntavísindasvið HÍ
14:00-14.30 Að bæta gæði kennslu - Sjónarhorn kennara: Arna Magnúsdóttir, kennari í Seyðisfjarðarskóla, Inga Rut Gunnarsdóttir, kennari í Laugarnesskóla og Margrét Guðgeirsdóttir kennari í Fellaskóla í Fellabæ.
14:30-15:00 Kaffi
15:00-16:00
Málstofur: Að þróa og efla gæði kennslu - frá kennara til kennara.
a. Íslenskukennsla: Helga Birgisdóttir, lektor við MVS, Áslaug E. Antonsdóttir og Bergþór Ólafsson, kennarar í Selásskóla, Fjóla M. Hrafnkelsdóttir kennari í Egilsstaðaskóla og Þórey Eiríksdóttir kennari í Brúarárskóla.
b. Náttúrufræðikennsla: Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor við MVS, Drífa Guðmundsdóttir, kennari í Hagaskóla, Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari í Rimaskóla, Hlín Stefánsdóttir, kennari í Egilsstaðaskóla, Kristbjörg Halldórsdóttir, kennari í Melaskóla, Margrét Guðgeirsdóttir, kennari í Fellaskóla Múlaþingi og Þórhildur Heimisdóttir, kennari í Fellaskóla Reykjavík.
c. Stærðfræðikennsla: Berglind Gísladóttir, dósent við MVS, Agnes E. Sigurjónsdóttir og Ingrid Marie Person, kennarar í Laugalækjarskóla, Arna Magnúsdóttir, kennari í Seyðisfjarðarskóla, Inga Rut Gunnarsdóttir, kennari í Lauganesskóla, Karen Sveinsdóttir, kennari í Djúpavogsskóla og Stein Olav Romslov, kennari í Hagaskóla.
Hægt er að fylgjast með fyrri hluta ráðstefnunnar í beinu streymi. Sjá streymi hér
Engin ráðstefnugjöld eru innheimt en þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig hér
Ráðstefnan Að auka gæði kennslu: Reynsla kennara af því að nýta myndupptökur fer fram fimmtudaginn 13. nóvember 2025 kl. 13.00 -16.00 í stofu S-261 í Sögu, Hagatorgi 1. Kynntar verða helstu niðurstöður rannsóknar- og þróunarverkefnisins: Sjálfbær starfsþróun til að auka gæði náms og kennslu (SÆG) sem beinist að kennsluháttum í íslensku, náttúrufræði og stærðfræði á mið- og unglingastigi grunnskóla. Sextán kennarar í Reykjavík og Múlaþingi hafa rýnt saman í eigin kennslu með hliðsjón af greiningarramma PLATO í eitt skólaár með það að markmiði að bæta gæði kennslu.Rannsóknin er styrkt af Menntarannsóknasjóði.
