Nýr vefur Háskóla Íslands opnaður á mánudag

Nýr vefur Háskóla Íslands verður opnaður á mánudag, 14. september, en vefsvæði skólans eru með þeim fjölsóttustu og efnismestu á Íslandi.
Með breytingunni er komið samræmt útlit og virkni á vefumhverfi skólans en enski vefur HÍ hafði áður fengið nýtt útlit.
Vefurinn er hannaður út frá þörfum ólíkra markhópa og liggur ítarleg þarfagreining að baki hönnun hans og virkni. Verkefnið hefur verið unnið í nánu samstarfi við vefstjóra fræðasviða, Upplýsingatæknisvið og aðra hagsmunaaðila innan og utan skólans.
Breytingunum fylgir bætt notendaupplifun, greiðara aðgengi að námsupplýsingum, aukið vefaðgengi og öflugri leitarvél auk margvíslegra nýrra eiginleika. Þá verður aftur hægt að skipta á milli íslenska og enska vefsins og fara beint á sambærilega síðu á hinu tungumálinu, þar sem hún er fyrir hendi.
Nýr vefur tekur mið af nýrri efnisstefnu skólans og er markvissari fyrir helstu markhópa hi.is. Vefumsjónarkerfið er jafnframt miklu öflugra, er einfaldara í notkun og öruggara.
Ábendingar frá notendum um það sem betur má fara eru eins og ávallt afar vel þegnar. Einfalt er að senda inn skilaboð frá hverri einustu síðu vefsins um viðbætur og breytingar auk þess sem hægt er að senda ábendingar á vefstjori@hi.is.
