HÍ og Samtökin ´78 efla saman fræðslu um málefni hinsegin fólks

Háskóli Íslands og Samtökin´78 hafa undirritað samstarfssamning til tveggja ára sem miðar að því að efla fræðslu og ráðgjöf um málefni hinsegin fólks og stöðu þess í menntakerfinu í námi þeirra fagstétta sem Menntavísindasvið HÍ menntar.
Samkvæmt samningnum munu Samtökin´78 eiga fund árlega með jafnréttisnefnd Menntavísindasviðs um tilhögun og áherslur í kynja- og jafnréttisfræðum í námi á Menntavísindasviði.
Þá munu samtökin veita kennurum Menntavísindasviðs ráð um námsefni sem varðar hinseginfræði, orðanotkun og hugtök, kyneinkenni og kyntjáningu og geta samkvæmt nánara samkomuleg verið nemendafélögum á fræðasviðinu til ráðgjafar um að skapa félags- og menningarlegan vettvang fyrir hinsegin nemendur og skilning meðal nemenda á jafnréttis- og kynjafræðum. Þá geta kennarar Menntavísindasviðs samkvæmt samningnum óskað eftir því að Samtökin komi inn í námskeið með sértæka fræðslu, eftir því sem við á.
Samningurinn var undirritaður fyrr í sumar en það gerðu Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ´78, og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, þáverandi forseti Menntavísindasviðs HÍ.
