Alþjóðadagar 2026

Háskólasvæðið
Alþjóðadagar eru árviss viðburður í Háskóla Íslands þar sem nemendum gefst tækifæri til að kynna sér ótal möguleika á námsdvöl erlendis, svo sem skiptinám, starfsþjálfun og styttri námsdvalir. Dagarnir varpa jafnframt ljósi á alþjóðlegt starf og fjölbreytileika háskólasamfélagsins og skapa vettvang fyrir íslenska og alþjóðlega nemendur til að hittast og mynda tengsl.
Á dagskrá verða kynningar á námsdvöl erlendis, Alþjóðatorgið, barsvar, karaókí og ýmislegt fleira. Starfsfólk Háskólans getur einnig kynnt sér möguleika á Erasmus+ kennara- og starfsmannaskiptum.
Alþjóðatorgið
Einn af hápunktum Alþjóðadaga er Alþjóðatorgið á Háskólatorgi. Þar geta nemendur kynnt sér tækifæri til námsdvalar erlendis, ólíka áfangastaði og rætt við nemendur sem hafa reynslu af skiptinámi og starfsþjálfun í öðrum löndum.
Á staðnum verða fulltrúar sendiráða, stofnana og félaga, sviða og deilda Háskólans og starfsfólk Alþjóðasviðs, auk fyrrum skiptinema sem miðla af reynslu sinni.
Lukkuhjól og alþjóðlegt smakk
Á torginu geta gestir snúið lukkuhjólinu og freistað gæfunnar - glæsilegir vinningar verða í boði! Þá verður hægt að smakka ýmiss konar góðgæti frá ólíkum heimshornum á kynningarbásunum.
Stúdentakjallarinn verður einn af miðpunktum Alþjóðadaga þar sem meðal annars verður boðið upp á barsvar og karaókí.
Dagskráin er skipulögð af Alþjóðasviði í samstarfi við alþjóðanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur.
Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim
