Ný bók um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur

Út er komin bókin Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971-1974 eftir Guðna Th. Jóhannesson, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í ritinu er sagt frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
Vald hinna veiku er efnismikið rit, 594 blaðsíður og ríkulega myndskreytt. Frásögnin er æsileg og litríkir kappar eigast við. Á hafi úti beita liðsmenn Landhelgisgæslunnar togvíraklippum af miklum móð, breskir togarajaxlar bölva þeim í sand og ösku og freigátukapteinar reyna að verja þessa landa sína en fá ekki að beita öllu afli gegn litla Íslandi. Í landi mega sáttfúsir Íslendingar sín lítils gegn þeim sem vilja berjast fyrir rétti okkar með þeim rökum að samningar séu svik og málamiðlanir aumingjalegt undanhald. Í Lundúnum og víðar blöskrar mörgum svo að íslenskir valdhafar virði ekki alþjóðalög, séu þrjóskan uppmáluð og hafi í hvers kyns hótunum. Sjaldan hefur eins mikið gengið á í samtímasögu okkar og þessi átakaár.
Guðni Th. Jóhannesson hóf rannsóknir sínar á sögu landhelgismálsins og þorskastríðanna undir lok síðustu aldar og fyrir fjórum árum gaf Sögufélag út fyrra verk hans um þau efni, Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961–1971. Árið 2006 kom einnig út stutt yfirlitsrit hans, Þorskastríðin þrjú. Saga landhelgismálsins, 1948‒1976.
Guðni hefur samið fjölmörg fræðirit og ævisögur. Hann hefur tvisvar verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlotið ýmsar aðrar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar.
