Skip to main content

Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við

Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. september 2026 11:30 til 13:00
Hvar 

Askja

Fyrirlestrasalur N-132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við

Fyrsti fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn 25. september kl. 11:30–13:00 og fjallar um sjálfsvíg á Íslandi, stöðuna í dag og leiðir til forvarna.

Á fundinum verður fjallað um áhættuþætti, stöðu og þróun sjálfsvíga á Íslandi, forvarnir og aðgerðir, mat og þjónustu eftir sjálfsvígstilraunir og stuðning við aðstandendur. Í lokin fara fram pallborðsumræður.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum

Fundarstjóri: Eva Skarpaas, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis

Hlekkur á beint streymi frá fundinum: Væntanlegur

Dagskrá:

  • Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands - Frá sjálfsvígshugsunum til forvarna: Hvað vitum við og hvað vantar okkur að vita?
  • Patrekur Örn Gestsson, rannsóknarmaður hjá Miðstöð í lýðheilsuvísindum - Tengsl áfalla í æsku við sjálfsvígshegðun kvenna
  • Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri embættis landlæknis – Tölfræði og aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi
  • Steinn Thoroddsen Halldórsson geðlækni og yfirlæknir á geðgjörgæsludeild Landspítala - Mat á sjálfsvígshættu og algeng nálgun eftir sjálfsvígstilraunir 
  • Anna Guðný Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjálp48 hjá Sorgarmiðstöðinni – Stuðningur við aðstandendur eftir sjálfsvíg
  • Pallborðsumræður í lokin

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða mikla vanlíðan er hægt að leita aðstoðar í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða á netspjallinu 1717.is allan sólarhringinn. Einnig er hægt að hafa samband við Píeta samtökin í síma 552 2218.

Fyrsti fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn í Öskju, N-132, 25. september kl. 11:30–13:00 og fjallar um sjálfsvíg á Íslandi, stöðuna í dag og leiðir til forvarna. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við