MIRA – Hnattræn borgaravitund í UNESCO-framhaldsskólum á Íslandi

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Hvernig getum við menntað ungt fólk til að takast á við síbreytilegan heim og hnattrænar áskoranir? Hvaða hlutverki gegna UNESCO-framhaldsskólar í að efla þekkingu á mannréttindum, sjálfbærni og friði og skapa um leið rými fyrir virkni og lýðræðislega þátttöku ungs fólks?
Á málþinginu verður MIRA kynnt, nýtt rannsóknar- og skólaþróunarverkefni sem hlaut styrk úr Menntarannsóknarsjóði Mennta- og barnamálaráðuneytisins árið 2026. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna hvernig hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og starfi íslenskra UNESCO-framhaldsskóla og hvernig skólar geta skapað umhverfi sem styður ungt fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu.
MIRA er unnið í samstarfi við kennara og nemendur í íslenskum UNESCO-skólum og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Alþjóðlegir rannsakendur frá Japan, Englandi og Írlandi koma einnig að verkefninu.
Dagskrá
Eva Harðardóttir, aðalrannsakandi MIRA og lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kynnir verkefnið, rannsóknarsniðið og samstarfið við íslenska UNESCO-skóla.
Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, fjallar um hlutverk frjálsra félagasamtaka í að efla hnattræna vitund, þátttöku og virkni ungs fólks.
Dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, fjallar um mikilvægi menntunar til hnattrænnar borgaravitundar í breyttum heimi og hvernig menntun getur skapað rými til að takast á við flóknar hnattrænar áskoranir.
Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis. Kennarar, stjórnendur, nemendur, rannsakendur, stefnumótandi aðilar og önnur sem hafa áhuga á menntun, hnattrænni borgaravitund og virkni ungs fólks eru sérstaklega hvött til að mæta.
Húsið opnar kl. 9:00 og heitt verður á könnunni.
Nánari upplýsingar: borgaravitund.hi.is