Ráðstefna Kennsluakademíu opinberu háskólanna

Saga
Auglýst síðar
Kennsluakademía opinberu háskólanna heldur sína árlegu ráðstefnu í Sögu, föstudaginn 20. nóvember 2026 klukkan 9:00 – 17:00.
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig kennslu á háskólastigi varða, kennurum, nemendum og stjórnendum.
Áhersla ráðstefnunnar er: Nám og kennsla í breyttri heimsmynd: Hugrekki, hugsjónir og manneskjan í brennidepli.
Hvernig styrkjum við háskólasamfélagið á tímum hraðra breytinga?
Gestgjafar ráðstefnunnar í ár eru meðlimir Kennsluakademíunnar af Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin en skráningar er krafist til að hægt sé að áætla fjölda. Hér er skráning. Boðið verður upp á kaffi og te meðan á ráðstefnu stendur og léttar veitingar að ráðstefnu lokinni. Dagskrá er enn í mótun.