Norrænar konur í landaleit. Sýning á stuttmyndum

Oddi
Stofa 101
Miðaldastofa Háskóla Íslands býður til sýningar á tveimur stuttmyndum eftir kanadíska teiknimyndahöfundinn G. Scott MacLeod þar sem hann vinnur úr íslenskum miðaldaheimildum um konur á Víkingaöld.
Sýningin fer fram í stofu 101 í Odda, miðvikudaginn 9. september kl. 18.
Myndirnar heita The Indigo Iona Saga and the Settlement of Iceland (30 mín.) og Expedition Greenland - Solveig’s Strength and Auðr’s Prosperity (30 mín.). Þær eru unnar með teiknimyndatækni og segja sögur af flutningi kvenna frá Noregi og Bretlandseyjum til Íslands og áfram til Grænlands.
Sendiherra Kanada á Íslandi, Jenny Hill, mun segja nokkur orð í upphafi sýningarinnar en hún fer fram í viðurvist höfundar, G. Scott MacLeod. Hér má horfa á viðtal við hann um verkefni sem myndirnar eru hluti af.
Norrænar konur í landaleit. Kanadískur teiknimyndahöfundur og kvikmyndaleikstjóri vinnur úr íslenskum miðaldaheimildum um konur á Víkingaöld.
