Skip to main content

Tungumál og hugarfar

Tungumál og hugarfar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. september 2026 16:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumála

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands og Pólska sendiráðið á Íslandi standa fyrir viðburði á heimasvæði tungumálanna í Veröld 14. september þar sem þátttakendum gefst kostur á að kynnast pólsku máli og menningu. Viðburðurinn sem skiptist í tvo hluta, fyrirlestur og þátttöku í rannsókn, er öllum opin og fer fram á ensku.

16:00–17:00: Hugarfar sem endurspeglast í tungumálinu - Hvernig tungumálið getur verið lykill að skilningi á pólskri menningu:
Endurspeglar pólska tungumálið pólskt hugarfar? Hvað segja hljóðkerfi og málfræði pólskunnar okkur um Pólverja og viðhorf þeirra til veruleikans? Hvaða vísbendingar um hugsunarhætti Pólverja er að finna í tungumálinu, til dæmis í hljóðkerfi, orðmyndun og setningafræði?
Í fyrirlestrinum fá þátttakendur innsýn í pólska menningu og hugarfar þar sem viðfangsefnið er tekið fyrir á óformlegan og gamansaman hátt. Tungumálið verður jafnframt kynnt sem leiðarvísir um völundarhús hins pólska hugar.

17:15–18:00: Rannsókn á fjöltyngisfærni:
Þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í málvísindalegri tilraun sem er hluti af rannsóknarverkefni tveggja málvísindamanna við Jagellónska háskólann í Kraká í Póllandi. Langar þig að komast að því hversu mikla pólsku þú kannt nú þegar, jafnvel þótt þú hafir aldrei lært tungumálið? Hefur þú heyrt um fjöltyngisfærni? Hæfni sem gerir okkur kleift að eiga samskipti, jafnvel á tungumálum sem okkur eru lítt eða alls ekki kunn?

Um fyrirlesarann:
Dr. Beata Terka er málvísindamaður og lektor við Institute of Polish Glottodidactics við Jagellónska háskólann í Kraká. Hún er löggiltur akademískur leiðbeinandi og prófdómari í opinberum prófum í pólsku sem öðru máli. Hún hefur einnig samið verkefni fyrir stöðupróf, kennsluefni og kennslubækur.
Rannsóknir hennar beinast meðal annars að málfræði, einkum beygingarfræði sagna, og kennslufræði erlendra tungumála. Hún rannsakar horf frá samanburðarlegu og kennslufræðilegu sjónarhorni, auk fjöltyngisfærni.

Beata Terka

Tungumál og hugarfar