Skip to main content
1. september 2026

Hvers konar stuðning þarf til að hlúa að samspili rannsókna og nýsköpunar?

""

Hvers konar stuðningur, umgjörð og samfélag þarf að vera til staðar til að hlúa að samspili vísindarannsókna og nýsköpunar sem þjónar íslensku samfélagi og stuðlar að heilbrigði, velferð og sjálfbærni til framtíðar? 

Leitast verður við að svara þessari spurningu á málstofunni „Rannsóknatengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar“ sem fram er í Grósku föstudaginn 4. september kl. 9-10.30. Þar koma saman fulltrúar úr háskólasamfélaginu, stuðningkerfi nýsköpunar og frá stjórnvöldum til að fjalla um hlutverk háskóla á tímum örra tækni- og samfélagsbreytinga og út frá nýrri atvinnustefnu stjórnvalda þar sem vísindi, rannsóknir og nýsköpun mynda hryggjarstykkið. 

Örar samfélagsbreytingar kalla á víðtækar grunnrannsóknir þvert á fræðasvið til að mæta þörfum framtíðar og á málþinginu verður sjónum m.a. beint að gervigreind og grunnrannsóknum, innviða- og gagnastefnu og stefnumörkun í stuðningsumhverfi nýsköpunar eins og uppbyggingu djúptækni á Íslandi.  

Málstofan, sem fer fram á ensku, er opin öllum og er liður í að halda áfram mikilvægu samtali þvert á háskóla og stjórnvöld um rannsóknatengda nýsköpun. 

Rögnvaldur J. Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika við HÍ, stýrir fundinum og erindi flytja:

  • Maria Theresa Norn,  aðstoðarframkvæmdastjóri Nýsköpunarsviðs Tækniháskólans í Danmörku (DTU), og dósent í nýsköpunarstefnu.
  • Kristinn R. Þórisson, prófessor í tölvunarfræði hjá Háskólanum í Reykjavík og stofnandi Vitvélastofnunar Íslands.
  • Eiríkur Stephensen, rannsóknainnviðastjóri Háskóla Íslands.
  • Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða.
  • Kristján Guy Burgess, sérfræðingur hjá Menningar-, nýsköpunar-  og háskólaráðuneytinu.

Skráning á málstofuna fer fram hér.

""