Skip to main content
31. ágúst 2026

Tæplega 30 afreksnemar taka við námsstyrkjum í Háskóla Íslands

Tæplega 30 afreksnemar taka við námsstyrkjum í Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í dag. Styrkþegar úr sjóðnum frá upphafi eru nú yfir 500 talsins.

Úthlutað hefur verið úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands frá árinu 2008, alls nítján sinnum. Sjóðurinn styður afreksnema til háskólanáms en við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.  

Sjóðnum bárust að þessu sinni 55 umsóknir um styrki og hafði stjórn sjóðsins það erfiða verkefni að velja styrkþega úr afar öflugum hópi umsækjenda. Stjórnin ákvað að þessu sinni að veita 29 nýnemum við Háskóla Íslands styrk, sem fyrr segir. Þeir koma úr 14 framhaldsskólum víða um land og í hópi þeirra eru 12 dúxar og semidúxar. Styrkþegarnir hefja nám á 18 mismunandi námsleiðum.

Hver styrkhafi hlýtur 400 þúsund króna styrk og heildarupphæð styrkjanna nemur því 11,6 milljónum króna. 

Styrkhafarnir eru: Andrea Erla Guðmarsdóttir,  Axel Tryggvi Vilbergsson, Ása Dagrún Geirsdóttir, Bjarki Freyr Guðmundsson, Daði Þór Friðriksson, Dunja Sól Markovic, Elvar Björn Ólafsson, Enok Hjörvarsson, Eyrún Freyja Andradóttir, Grímur G. Einarsson, Hallsteinn Skorri Haraldsson, Hávar Daníel Davíðsson, Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, Herdís Freyja Friðriksdóttir, Hrafnhildur Kjartansdóttir Hördal, Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir, Hugrún Hanna Guðrúnardóttir, Jökull Þór Hilmarsson Kjerúlf, Lilja Rut Halldórsdóttir, Lýður Þór Lýðsson, Óskar Már Friðþjófsson, Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara, Sólný Helga Sigurðardóttir, Stefan Erlendur Ívarsson, Sylvía Kristín Ívarsdóttir, Sölvi Freyr Valdimarsson, Telma Aníka Torfadóttir, Valgerður Birna Magnúsdóttir og Viltė Petkutė.

Styrkirnir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands. 

Stjórn Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands skipa Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis og prófessor við Sálfræðideild, Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, og Brynja Þorgeirsdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild.

Nánari upplýsingar um styrkhafana.

Nánar um sjóðinn á vef Háskóla Íslands
 

Styrkþegar ásamt rektor Háskóla Íslands og stjórn sjóðsins.