Skip to main content

Doktorsvörn í vélaverkfræði - Ziwei Lu

Doktorsvörn í vélaverkfræði - Ziwei Lu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. september 2026 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/65458318860

Doktorsefni:
Ziwei Lu

Heiti ritgerðar:
Endurhönnun á plastumbúðum fyrir flutning á ferskum fiski Léttvigtarhönnun á 3-kg EPS-kössum og 460-L PE-kerum með samlokubyggingu, byggð á tölulegum rannsóknum og tilraunum á varma- og burðarhegðun. 

Andmælendur:
Dr. Maria Charalambides, prófessor við verkfræðideild Imperial College í London, Bretlandi
Dr. Ignat Tolstorebrov, dósent við verkfræðideild Norwegian University of Science and Technology í Noregi

Leiðbeinandi:
Dr. Björn Margeirsson, gestadósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Fjóla Jónsdóttir, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Ólafur Ögmundarson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands

Doktorsvörn stýrir:
Hafsteinn Einarsson

Ágrip:
Vaxandi eftirspurn eftir sjálfbærum kælikeðjuflutningum hefur skapað þörf fyrir léttari og umhverfisvænni umbúðir fyrir flutning á ferskum matvælum. Þessi ritgerð rannsakar burðar-, varma- og umhverfisframmistöðu EPS-frauðplastkassa og hverfisteyptra PE-matvælakera sem notuð eru við flutning á ferskum fiskafurðum. Markmiðið er að þróa léttari umbúðalausnir án þess að slaka á kröfum um vélrænan styrk og varmaeinangrun sem krafist er við dreifingu kældra matvæla. Rannsóknin tvinnar saman tilraunaprófanir, örbyggingargreiningu, einingagreiningu (FEA) og vistferilsgreiningu (LCA) til að tengja efniseiginleika við heildarframmistöðu EPS-kassa. Niðurstöður tilrauna á EPS-kössum sýna að litlar breytingar á eðlismassa auka fjaðurstuðul efnisins verulega, og hafa áhrif á stífni og stöflunarstyrk kassans. Með notkun kvarðaðs FEA-líkans náðist að minnka þyngd EPS-kassans um 11% með bættri hönnun. Þetta dró úr umhverfisáhrifum í öllum helstu flokkum LCA-greiningarinnar, en olli jafnframt 9% minnkun á varmaeinangrun og óverulegri skerðingu á stöflunarstyrk. Hvað varðar PE-matvælakerin kom í ljós að gallar í örbyggingu í ytra lagi úr háþéttnipólýetýleni (HDPE) drógu verulega úr seiglu efnisins. Hermanir á lyftingum við iðnaðaraðstæður sýndu enn fremur að kiknun á handfangi væri ráðandi bilunarháttur, sem veitir skýra leið til formfræðilegrar bestunar á burðarþoli á fjaðrsviði. Á heildina litið veitir þetta verk vísindalega staðfestar hönnunarleiðbeiningar fyrir sjálfbærari umbúðir í kælikeðjuflutningum, og undirstrikar mikilvægi þróaðra efnislíkana og slembiháðra tölulegra aðferða sem geta tekið tillit til eðlislægs breytileika í örbyggingu PE-frauðs.

Um doktorsefnið:
Ziwei Lu, fædd árið 1993, hlaut B.Eng. gráðu sína árið 2013 frá University of Electronic Science and Technology of China (UESTC) og M.Eng. gráðu árið 2017 frá Southeast University (SEU) í Kína. Áður en hún hóf doktorsnám öðlaðist hún dýrmæta reynslu úr atvinnulífinu sem rannsókna- og þróunarverkfræðingur hjá AAC Technologies (2017–2019) og sem verkefnastjóri (með PMI vottun) hjá OPPO Communications (2019–2020). Ziwei er gift Hao Geng, sem er einnig doktorsnemi við sömu deild.

Doktorsefnið Ziwei Lu

Doktorsvörn í vélaverkfræði - Ziwei Lu