Líf og fjör á Hólum við upphaf nýs skólaárs

Mikið líf og fjör var á Hólum í vikunni þegar nýtt skólaár fór af stað af fullum krafti. Nýnemadagar Háskóla Íslands á Hólum voru haldnir dagana 25.- 26. ágúst og fengu nýir nemendur tækifæri til að kynnast skólanum, starfsfólki, þjónustu og samnemendum áður en kennsla hófst formlega.
Sérstaklega var ánægjulegt að sjá metaðsókn nýnema í Ferðamáladeild, þar sem fjölbreyttur hópur nemenda hóf nám við deildina. Jafnframt komu nemendur Hestafræðideildar á Hóla og hófu undirbúning fyrir annasama og spennandi önn. Samhliða nýnemadögunum fór fram staðlota í öllum deildum skólans. Nemendur og kennarar komu saman til kennslu, funda og verkefnavinnu og mátti finna fyrir þeirri sérstöku stemningu sem skapast þegar Hólar fyllast á ný af nemendum eftir sumarið.
Nemendur við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild fóru jafnframt í vettvangsferð um Norður- og Norðausturland þar sem heimsótt voru fyrirtæki og starfsemi tengd fiskeldi. Slíkar ferðir eru mikilvægur hluti námsins og gefa nemendum tækifæri til að kynnast atvinnugreininni af eigin raun og tengja fræðin við starfsvettvanginn.
Það var ánægjulegt að sjá Hóla iða af lífi á ný, með nemendur á ferð um staðinn, kennslu í fullum gangi og nýtt skólaár að taka á sig mynd. Fram undan er fjölbreytt og spennandi haustönn og hlökkum við til að fylgjast með öllu því góða starfi sem nemendur og starfsfólk munu vinna á komandi misserum.


