28. ágúst 2026
Samræðusiðfræði eftir Vilhjálm Árnason

Út er komin bókin Samræðusiðfræði eftir Vilhjálm Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands. Bókin er safn greina sem fjalla um siðferðilegt hlutverk samtala og rökræðu. Samræðuhugtakið er brotið til mergjar og rýnt í hugmyndir um efnið frá sjónarhóli siðfræði, tilvistarstefnu og samfélagsheimspeki. Sýnt er fram á mikilvægi samtals og rökræðu á ólíkum sviðum mannlífsins, svo sem í menntun, stjórnmálum og heilbrigðisþjónustu. Að mati höfundar hefur þróun undanfarna áratuga í stjórnmálum og menningu leitt til þess að brýnt sé að styrkja rökræðustoðir lýðræðissamfélagsins og gaumgæfa þýðingu samtalsins í mannlegum samskiptum.
Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.
