Skip to main content
26. ágúst 2026

Á leið í starfsþjálfun hjá Mannréttindadómstól Evrópu

Á leið í starfsþjálfun hjá Mannréttindadómstól Evrópu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Kristín Hekla Örvarsdóttir, sem útskrifaðist frá Lagadeild Háskóla Íslands í vor, hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir framúrskarandi meistararitgerð í lögfræði. Í viðurkenningarskyni býðst henni að fara í starfsþjálfun við Mannréttindadómstól Evrópu (MDE).

Tækifærið til starfsþjálfunar byggist á samkomulagi sem lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík gerðu við dómstólinn að frumkvæði Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstólinn og fyrrverandi prófessors við deildirnar. Í samningnum felst að einum nemanda frá hvorri deild er boðið til starfsþjálfunar við dómstólinn.

Þetta var í annað sinn sem viðurkenningin var afhent og tók Kristín Hekla við viðurkenningarvotti ásamt Aldísi R. Ingólfsdóttur, nýútskrifuðum lögfræðingi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík, á athöfn í HR fimmtudaginn 20. ágúst. Þar kynntu þær efni ritgerða sinna auk þess sem Oddný Mjöll fjallaði um starfsþjálfunina. 

Ritgerð Kristínar ber heitið „Réttlát málsmeðferð í einkamálum. Samspil krafna 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og meginreglna íslensks einkamálaréttarfars“ og var unnin undir leiðsögn Víðis Smára Petersen, prófessors við Lagadeild. 

Í ritgerðinni leitar Kristín Hekla svara við því hvaða kröfur 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) um réttláta málsmeðferð gerir til meðferðar einkamála á Íslandi og hvort þeim kröfum sé almennt fylgt. „Sjónum er nær eingöngu beint að sjálfri málsmeðferð dómsmála, þ.e. frá þingfestingu til dómsuppkvaðningar, og eru því kröfur 6. gr. MSE um réttláta, opinbera og skjótvirka málsmeðferð mest til umfjöllunar,“ segir í ágripi af ritgerðinni

Meginniðurstaða Kristínar Heklu er sú að íslenskt réttarkerfi uppfylli almennt kröfur 6. gr. MSE um réttláta málsmeðferð.

Kristín Hekla Örvarsdóttir er hér ásamt Oddnýju Mjöll Arnardóttur (t.v), dómara við Mannréttindadómstólinn og fyrrverandi prófessor við HÍ og HR, og prófessorunum Hrefnu Róbersdóttur, forseta Lagadeildar, og Víði Smára Petersen, leiðbeinanda Kristínar.