Skip to main content
27. ágúst 2026

Landsmót hestamanna 2026 vettvangur rannsókna við HÍ á Hólum

nemendur ferðamáladeildar að spurja þátttakendur á Landsmóti hestamanna spurningar

Ferðamáladeild Háskóla Íslands á Hólum hélt áfram rannsóknum sínum á Landsmóti hestamanna í sumar með þátttöku starfsfólks og nemenda úr viðburðarstjórnunarnámi deildarinnar. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á viðhorf gesta til sjálfbærni og umhverfismála á mótinu, sem fram fór á Hólum í Hjaltadal í júlí. 

Það fór víst ekki fram hjá neinum sem áhuga hefur á hestum og hestamennsku að Landsmót hestamanna (LM) fór fram á Hólum í Hjaltadal í júlí s.l. Mótið er einn stærsti viðburður Íslandshestamennskunnar hérlendis þar sem saman koma gestir víðs vegar að úr heiminum og skapa einstaka stemningu með sameiginlega ástríðu fyrir íslenska hestinum í forgrunni.

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum – nú Háskóla Íslands á Hólum (HÍH) er einn af fáum aðilum hérlendis sem rannsakað hafa viðburði og viðburðarhald sérstaklega enda er boðið upp á viðburðarstjórnunarnám við deildina, á diplóma og BA-stigi. Deildin stóð fyrir rannsóknum á LM 2016 og 2018  í samstarfi við innlenda og alþjóðlega aðila og í ár var þeim rannsóknum áframhaldið, byggt á þekkingarsköpun frá fyrri mótum og nú með áherslu á að skoða viðhorf gesta til sjálfbærrar þróunar mótsins, en aðstandendur mótsins í ár lögðu stóraukið vægi á flokkun úrgangs og ábyrga nýtingu auðlinda á mótssvæðinu frá því sem verið hefur á sambærilegum mótum.

Með rannsakendum úr hópi starfsfólks Ferðamáladeildar,tók þátt í rannsókninni vaskur hópur nemenda úr viðburðarstjórnunarnámi við HÍH og mátti alla daga mótsins sjá bleik vesti rannsóknarteymisins fara um svæðið í gagnaöflunina fyrir rannsóknina.  

Ferðamáladeild þakkar viðburðarstjórnunarnemendum sérstaklega fyrir aðstoðina. LM 2026 ehf. er þakkað fyrir einstaklega gott samstarf á mótinu og SSNV fyrir stuðning við rannsóknina. 

nemendur og kennari ferðamáladeildar HÍ á Hólum uppstilltir í bleikum vestum séð að framan
nemendur og kennari ferðamáladeildar HÍ á Hólum uppstilltir í bleikum vestum séð að aftan