Skip to main content
25. ágúst 2026

Sigfús Ingi Sigfússon ráðinn rekstrarstjóri Háskóla Íslands á Hólum

Aðalbygging HÍ á Hólum

Sigfús Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Háskóla Íslands á Hólum og hóf hann störf þann 17. ágúst sl.

Sigfús Ingi hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem sveitarstjóri Skagafjarðar frá árinu 2018 til 2026, þar áður sem verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá sveitarfélaginu, auk þess að hafa fjölbreytta reynslu úr störfum í opinberri stjórnsýslu hjá ráðuneytum og hafa starfað hjá fyrirtækjum á einkamarkaði. Í störfum sínum hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði stefnumótunar, fjármála, mannauðsmála, uppbyggingar og þróunar samfélagsverkefna.

Sigfús Ingi lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og MBA-gráðu frá University of Stirling í Skotlandi árið 2002. Auk þess hefur hann stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og m.a. lokið diplómu í því námi.

Í starfi rekstrarstjóra mun Sigfús Ingi bera ábyrgð á rekstri og stoðþjónustu Háskóla Íslands á Hólum og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar í samstarfi við starfsfólk skólans og Háskóla Íslands.

„Við erum afar ánægð með að fá Sigfús Inga til liðs við okkur. Hann býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og rekstri auk þess að þekkja afar vel til samfélagsins í Skagafirði og þeirra tækifæra sem felast í starfsemi Háskóla Íslands á Hólum. Þekking hans og reynsla mun nýtast skólanum vel á tímum uppbyggingar og þróunar,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum.

Háskóli Íslands á Hólum býður Sigfús Inga velkominn og hlakkar til samstarfsins.

Sigfús Ingi Sigfússon passamynd