Örn Guðmundsson verður framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Háskóla Íslands.
Örn lauk Cand.oecon. prófi frá Háskóla Íslands árið 1996 og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School árið 1998. Örn býr yfir 25 ára reynslu af stjórnunar- og leiðtogastörfum og hefur gegnt störfum framkvæmdastjóra, fjármálastjóra, aðstoðarframkvæmdastjóra og forstöðumanns hjá stórum skipulagsheildum. Hann hefur borið ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð, fjármögnun, áhættustýringu og rekstrarlegri þróun fyrirtækja um langt árabil.
Örn var framkvæmdastjóri Mannvits hf. á árunum 2018-2023 og síðar framkvæmdastjóri COWI Ísland ehf. 2023-2024. Hann gegndi starfi fjármálastjóra Mannvits hf. á árunum 2015-2018 og þar áður var hann aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Kaupþing hf. á árunum 2009-2015. Örn situr í bankaráði Landsbankans, hefur gegnt formennsku í endurskoðunarnefnd og áhættunefnd bankans og er stjórnarformaður Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. sem er í eigu ríkis og sveitarfélaga.
„Það er mikill heiður að ganga til liðs við Háskóla Íslands og taka þátt í því mikilvæga starfi sem þar fer fram í þágu menntunar, vísinda og samfélagsins. Ég hlakka til að kynnast öflugu starfsfólki skólans og vinna með því að áframhaldandi þróun skólans, traustum rekstri og góðri þjónustu við háskólasamfélagið,“ segir Örn Guðmundsson.
„Við í HÍ erum heppin að fá til liðs við okkur jafn reynslumikinn stjórnanda og Örn. Hann tekur við af Guðmundi Ragnari Jónssyni sem fer á eftirlaun eftir áramót. Það er ómetanlegt að þeir geti starfað saman næstu mánuði enda er rekstur skólans bæði umfangsmikill og flókinn. Ég hlakka til að vinna með Erni að því að styrkja rekstur háskólans og gera góðan vinnustað enn betri,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Framkvæmdastjóri leiðir hluta sameiginlegrar stjórnsýslu Háskóla Íslands í umboði rektors. Hann hefur yfirumsjón með fjármálasviði, framkvæmda- og tæknisviði, mannauðssviði og upplýsingatæknisviði.
Örn hefur þegar hafið störf.
