Móttaka nýnema á Menntavísindasviði með nýju sniði

Tekið var á móti nýnemum Menntavísindasviði dagana 17.-18. ágúst í Sögu en í ár var hún með nýju sniði og hluti af vinnu Menntavísindasviðs við fyrsta árs upplifun nemenda. Markmiðið var að taka vel á móti nýnemum, hjálpa þeim að kynnast samnemendum, rata betur um námsumhverfið og fá skýra mynd af því hvernig háskólanám virkar. Fyrri daginn byrjuðu nemendur í stofum með öðrum úr sömu námsbraut. Þar var þeim skipt í 5–6 manna hópa. Námsumsjónarkerfi HÍ voru kynnt fyrir nýnemum á nýstárlegan hátt, með ratleik um Sögu þar sem hóparnir leystu verkefni á Canvas námsvefnum, kynntust háskólasamfélaginu og helstu þjónustu og úrræðum.
Freyja Hreinsdóttir, nýr forseti Menntavísindasviðs ávarpaði nýnema á 1. hæð í Sögu að hádegisverði loknum ásamt Ívari Mána Hrannarssyni, forseta sviðsráðs MVS. Í máli Freyju kom meðal annars fram að þetta væri í fyrsta skipti sem sviðið gæti tekið á móti nemendum, frá fyrsta degi eftir að byggingin Saga hefði verið tekin í notkun um haustið árið 2025, að samskipti væru sérstaklega mikilvæg fyrir fólk sem starfi í menntavísindum, að mikilvægt væri fyrir nemendur að nýta þessa tvo nýnemadaga til að kynnast fólki, fræðast um námið og hin ýmsu kerfi sem væru notuð.
Eftir sameiginlegan hádegisverð og móttöku Freyju og Ívars var farið yfir hvernig háskólanám virkar, hvers er ætlast til af nemendum, hvers þau mega vænta af kennurum og hvert þau eiga að leita með mismunandi erindi. Nemendafélögin tóku svo við hópunum í lok dags og stýrðu hópefli.
„Nemendur unnu frá upphafi saman í litlum hópum“
Seinni dagurinn hófst með óformlegri morgunverðarstund þar sem nemendur hittu hópinn sinn aftur. Því næst fóru þau í deildarstofur og fengu kynningu á deild sinni og námsbraut. Nemendafélögin kynntu einnig félagslíf, þjónustu og helstu úrræði á Háskólasvæðinu. Að loknum sameiginlegum hádegisverði héldu nýnemar í kennslustundir samkvæmt stundaskrá.
„Nýnæmi móttökunnar í ár fólst fyrst og fremst í því að móttakan var skipulögð sem sameiginlegt tveggja daga ferli fyrir allt sviðið og er fyrsti sýnilegi hluti vinnu Menntavísindasviðs við að bæta fyrsta árs upplifun nemenda sem byggðist á tengslamyndun, námsfærni og kerfisfærni. Nemendur unnu frá upphafi saman í litlum hópum, skráðu sig sjálf í hópa í Canvas, hlóðu upp verkefnum og myndum og þurftu að finna upplýsingar og leysa raunveruleg verkefni í námsumsjónarkerfum HÍ og tóku þar með fyrstu skrefin í kerfunum saman samhliða því að kynnast samnemendum og húsakynnum sviðsins,“ segir Aron Ólafsson, þróunarstjóri samfélags á Menntavísindasviði og verkefnisstjóri móttökunnar og bætir við: „Jafnframt fólst nýnæmi í að tengja kennara, starfsfólk og nemendafélög saman í eina samfellda dagskrá. Námsbrautin var heimahöfn nemenda, en þau fengu jafnframt tengingu við deildina, sviðið, þjónustuna og félagslífið. Markmiðið var að þau færu inn í fyrstu kennsluvikuna með tengsl við samnemendur, betri tök á kerfunum og skýrari hugmynd um hvernig háskólanám virkar.“




