Skip to main content

Tilraun um sköpun heimsins: Örnefni í Surtsey

Tilraun um sköpun heimsins: Örnefni í Surtsey - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. september 2026 16:00 til 17:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sigurðar Nordals fyrirlestur er haldinn 14. september ár hvert. Fyrirlesari að þessu sinni er fornleifafræðingurinn Birna Lárusdóttir.

Staður og stund: Fyrirlestrasalurinn í Eddu kl. 16.

Efni fyrirlestrarins
Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu. Markviss söfnun þeirra hér á landi hófst snemma á 20. öld en örnefnalýsingar bera þess oft merki að vera flókin samsetning margra sjónarhorna, enda verða nöfnin til og eru notuð í samfélagi manna sem er margbrotið í tíma og rúmi.
Sum varðveitast í munnlegri geymd eða á prenti og önnur hafa horfið eða mjakast í bakgrunninn í flóknu framvinduferli.
Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi og rekja ferli örnefna í samhengi við landnám og dvöl mannsins í eynni.
Hér verður sagt frá því hvernig nýtt land varð til og öðlaðist merkingu, m.a. með örnefnum. Byggt er á margvíslegum rannsóknum höfundar bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda af ýmsu tagi, m.a. varðveittra gestabóka úr eynni.

Nánar um fyrirlesara
Fyrirlesturinn byggir á doktorsritgerð Birnu í landfræði við Háskóla Íslands, en vörnin fór fram í mars 2026. Birna sat í rannsóknarstöðu Sigurðar Nordals við Árnastofnun um þriggja ára skeið meðan á náminu stóð.

Hún er með MA-próf í fornleifafræði og BA-próf í íslensku og hefur sinnt margvíslegum störfum sem varða minjar og menningarlandslag. Hún hefur starfað við fornleifarannsóknir um árabil hjá Fornleifastofnun Íslands ses. auk þess að ritstýra Árbók fornleifafélagsins um nokkurra ára skeið. Hún er aðalhöfundur og ritstjóri bókarinnar Mannvist sem kom út hjá forlaginu Opnu 2011.

Auk þess að taka þátt í rannsóknarverkefnum starfar hún hjá Minjastofnun Íslands um þessar mundir og sem formaður faghóps 1 í rammaáætlun auk þess að rita pistla í Bændablaðið.

Fyrirlesturinn byggir á doktorsritgerð Birnu í landfræði við Háskóla Íslands, en vörnin fór fram í mars 2026. Birna sat í rannsóknarstöðu Sigurðar Nordals við Árnastofnun um þriggja ára skeið meðan á náminu stóð.

Tilraun um sköpun heimsins: Örnefni í Surtsey