Kynningarfundur um niðurstöður PISA 2025

Saga
S114
PISA könnunin var síðast lögð fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla á Íslandi vorið 2025 á vegum mennta- og barnamálaráðuneytis. Menntavísindastofnun Háskóla Íslands gefur út skýrslu með niðurstöðunum 8. september 2026 undir ritstjórn Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Guðmundar Bjarka Þorgrímssonar sérfræðings hjá mennta- og barnamálaráðuneyti. Hópur fræðafólks við Menntavísindasvið HÍ og Háskólann á Akureyri hefur greint niðurstöður og skrifað kaflana í skýrsluna: Berglind Gísladóttir dósent við MVS, Edda Elísabet Magnúsdóttir lektor við MVS, Helga Birgisdóttir lektor við MVS, Kristján Ketill Stefánsson dósent við MVS, Svava Pétursdóttir dósent við MVS og Þorlákur Axel Jónsson lektor við HA.
Á þessum fundi verður efni niðurstöðuskýrslunnar kynnt en nánari dagskrá verður birt síðar.