Skip to main content

Doktorsvörn í menningarfræði: Katla Kjartansdóttir

Doktorsvörn í menningarfræði: Katla Kjartansdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. ágúst 2026 13:00 til 15:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 21. ágúst fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Katla Kjartansdóttir doktorsritgerð sína í menningarfræði, Animals on display in an Age of Extinction. Viðburðurinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.

Andmælendur við vörnina Dehlia Hannah, dósent við Kaupmannahafnarháskóla og Cecilia Åsberg, prófessor við Linköping háskóla. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Bryndísar Snæbjörnsdóttur, prófessor við Listaháskóla Íslands. Einnig voru í doktornefnd Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, Hester Dibbits, prófessor við Erasmus Háskóla Rotterdam og Katrín Anna Lund, prófessor við Háskóla Íslands.

Ásgrímur Angantýsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Rannsóknin greinir táknrænt hlutverk lifandi dýra en einnig í formi safngripa, listmuna, minjagripa og táknmynda nú á öld útrýmingar. Ritgerðin varpar m.a. ljósi á hvernig lundinn hefur tekið þátt í að markaðssetja Ísland þar sem lögð er áhersla á hreina og óspillta náttúru og tækifæri til að komast í nána snertingu við villt dýra- og fuglalíf. Lögð er áhersla á að nálgast dýr, sem virka gerendur með eigin bakgrunn, atbeini og áhrifavald. Þá varpar ritgerðin ljósi á hvernig loftslagsbreytingar og útrýming dýrategunda, hafa umbreytt sambandi mannfólks og dýra. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi menningar og skapandi lista þegar kemur að því að takast á við helstu samfélags- og umhverfisáskoranir okkar samtíma, á borð við útrýmingu dýrategunda, þvert á tegundir og önnur mæri.

Um doktorsefnið

Katla Kjartansdóttir er með BA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í þjóðernisfræðum frá Edinborgarháskóla. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum þverfaglegum og þverþjóðlegum rannsóknarverkefnum og verið stundakennari við Háskóla Íslands í um 20 ár, með hléum. Þá hefur hún einnig starfað á vettvangi menningar og safna um langt skeið.

Katla Kjartansdóttir.

Doktorsvörn í menningarfræði: Katla Kjartansdóttir