Skip to main content
15. júlí 2026

Viktor F. Aðalsteinsson varði meistararitgerð í fiskeldis- og fiskalíffræði

Viktor F. Aðalsteinsson að skoða sýni í smásjá

Þann 27. maí varði Viktor F. Aðalsteinsson meistararitgerð sína við Háskólann á Hólum, þar sem hann lauk meistaranámi við fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans. Ritgerðin ber heitið Asynchrony in the dynamics of chironomids across six locations in Northeast Iceland og var unnin undir leiðsögn Bjarna K. Kristjánssonar.

Í rannsókn sinni skoðaði Viktor 18 ára gagnaröð um stofnsveiflur bitmýs (Chironomidae) á sex rannsóknarsvæðum á Norð­austurlandi, þar á meðal við Mývatn og fleiri vötn á svæðinu. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vistfræðilega þætti sem hafa áhrif á breytingar í stofnstærðum þessara skordýra.

Niðurstöðurnar sýna að sveiflur í stofnstærð bitmýs eru ólíkar milli svæða, jafnvel á nálægum stöðum. Það bendir til þess að staðbundnir vistfræðilegir þættir, svo sem búsvæði, fæðuframboð og samspil tegunda, hafi meiri áhrif á stofnsveiflurnar en sameiginlegir umhverfisþættir eða flutningur skordýra milli vatna. Rannsóknin hefur jafnframt þýðingu fyrir vernd og stjórnun vistkerfa, meðal annars fyrir fuglategundir sem nýta bitmý sem fæðu.

Við óskum Viktori innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og meistaragráðuna. Við óskum honum velfarnaðar í áframhaldandi rannsóknum og störfum.

Hér er hægt að lesa ritgerðna hans Viktors í heild sinni. Asynchrony in the dynamics of chironomids across six locations in Northeast Iceland.

Rannsókn Viktors í náttúrunni. Bjartur himinn, vatn og verkfæri úrí móa.
Viktor að verja meistararitgerð sína fyrir framan áheyrendur