Skip to main content
20. júlí 2026

Full Circle: Námskeið um hringrásarlausnir og sjálfbærni í fiskeldi

Hópur á námskeiði Full Circle

Þann 18. júní stóð Háskólinn á Hólum (nú Háskóli Íslands á Hólum) fyrir námskeiðinu Full Circle: Rethinking Waste in Aquaculture, þar sem sjónum var beint að því hvernig aukaafurðir og hliðarstraumar úr fiskeldi geta orðið verðmætar auðlindir fyrir matvælaframleiðslu, landbúnað og aðrar lausnir sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins.

Á námskeiðinu var lögð áhersla á hagnýtar lausnir á borð við aquaponics, endurnýtingu næringarefna, ormarækt, sjálfvirknivæðingu og nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari matvælakerfum. Markmiðið var að efla þekkingu og skapa vettvang fyrir samtal um hvernig nýta megi auðlindir fiskeldis á skilvirkari og sjálfbærari hátt.

Alls tóku 15 þátttakendur frá Íslandi og erlendis þátt í námskeiðinu. Þeir komu frá háskólum, rannsóknastofnunum, atvinnulífi, einkageiranum og úr röðum íslenskra bænda, sem skapaði fjölbreytt og lifandi námsumhverfi. Yfir daginn skiptust þátttakendur og fyrirlesarar á þekkingu, reynslu og hugmyndum sem leiddu til nýrra faglegra tengsla og umræðna um mögulegt framtíðarsamstarf.

Fyrirlesarar á námskeiðinu voru:

  • Eva KuttnerResearch at Hólar University: An Overview
  • Victor LobanovAutomating the Busywork: AI and Raspberry Pi in Aquaculture
  • Amber MonroeAquaponic Methods as a Resource in Iceland
  • Sven-Ole MeiskeFrom Waste to Resource: Closing the Nutrient Loop in Aquaculture
  • Victor LobanovMeeting the Dual Challenge of Economic Viability and Sustainability

Námskeiðið var skipulagt af Háskólanum á Hólum í samstarfi við Ísponica ehf. og hlaut styrk úr Fræðslusjóði. Með því að leiða saman rannsakendur, kennara, fagfólk úr atvinnulífi og bændur skapaðist vettvangur fyrir miðlun þekkingar, ný fagleg tengsl og samtal um framtíð sjálfbærs fiskeldis og hringrásar í matvælaframleiðslu.

Háskóli Íslands á Hólum þakkar öllum fyrirlesurum og þátttakendum fyrir fróðlegan og vel heppnaðan dag. Námskeiðið sýndi með skýrum hætti mikilvægi samstarfs milli rannsókna, atvinnulífs og nýsköpunar við þróun sjálfbærra lausna fyrir framtíð matvælaframleiðslu og fiskeldis.

Eva Kuttner að kynna Rannsóknasetrin á námskeiðinu Full Circle. Stendur við púlt og er með glærusýningu í bakgrunni
Hópur þátttakenda á námskeiðinu Full Circle í sal á Hólum
Victor Lobanov með kynningu á námskeiðinu Full Circle á Hólum. Stendur við púlt með glærusýningu í bakgrunni