Skrifstofa HÍ á Hólum er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum og á Faxatorgi á Sauðárkróki. Starfsfólk stoðþjónustu og stjórnendur HÍ á Hólum annast margvíslega þjónustu við kennara og nemendur, sem hafa greiðan aðgang að starfsfólki á skrifstofu sviðsins, með tölvupósti, í viðtölum á afgreiðslutíma, með símtölum eða á sérstökum fundum á staðnum eða í fjar. Nemendur geta leitað upplýsinga, leiðbeininga og ráðgjafar hjá kennslustjóra HÍ á Hólum og starfsfólki einstakra deilda skólans. Á skrifstofunni starfa forseti HÍ á Hólum ásamt rekstrarstjóra sem annast fjármálastjórn sviðsins og daglega stjórnun skrifstofunnar. Kennslustjóri sér um almenna þjónusta við nemendur og kennara. Starfsfólk stoðþjónustu sér einnig um margvísleg verkefni fyrir hönd HÍ á Hólum, s.s. alþjóðamál, kennslumál, markaðs- og kynningarmál, umsjón með upplýsingatæknimálum, starfsmannamál, rannsóknaþjónustu o.fl. Að auki hafa nemendur og starfsfólk aðgang að allri stoðþjónustu innan Háskóla Íslands, annað hvort með því að hafa beint samband við til dæmis Þjónustuborð HÍ eða í gegnum tengiliði HÍ á Hólum við einstök svið innan HÍ. Opnunartími skrifstofu HÍ á Hólum Skrifstofan í aðalbyggingu á Hólum er opin virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 14:00. Utan opnunartíma er hægt að hafa samband í gegnum Þjónustuborð HÍ í síma 525 4000. Kennsluskrifstofa Kennslustjóri: Ragnheiður Halldórsdóttir Tölvupóstur: ragnheidurh@hi.is Skrifstofa: Hólar í Hjaltadal Viðtalstímar: Birtast í Uglu. Kennslustjóri veitir upplýsingar sem tengjast námi nemenda við skólann, allt frá innritun að útskrift. Kennslustjóri vinnur með kennurum og stjórnendum HÍ á Hólum að skipulagi náms og svo ýmsum sviðum innan HÍ svosem bókasafni, ritveri, námsráðgjöf, upplýsingatæknisviði, kennsluskrá, nemendaskrá og fleiri sviðum sem koma að námi nemenda í háskólasamstæðunni. Kennslustjóri sér um Uglu HÍ á Hólum og er tengiliður HÍ á Hólum við Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn Námsráðgjöf Upplýsingar um hvernig er hægt er að panta viðtalstíma við námsráðgjafa má finna á síðu Nemendaráðgjafar HÍ. Starfsfólk skrifstofu og stoðþjónustu Forseti: Hólmfríður Sveinsdóttir hofi@hi.is Rekstrarstjóri: Sigfús Ingi Sigfússon Kennslustjóri: Ragnhildur Halldórsdóttir ragnheidurh@hi.is Alþjóðafulltrúi: Amber C. Monroe amber@hi.is Staðarumsjónarmaður: Baldvin Bjarki Baldvinsson baldvinbb@hi.is Verkefnastjóri fjármála: Óli Viðar Andrésson olividar@hi.is Rannsóknarstjóri: Eva Kuttner evak@hi.is Gæðastjóri: Anna Jóna Kristjánsdóttir annajonak@hi.is Verkefnastjóri/kynningarmál: Ólína Björk Hjartardóttir olinabjork@hi.is Verkefnastjóri: Katrín María Andrésdóttir katrinmaria@hi.is Upplýsingatæknistjóri: Broddi Reyr Hansen broddi@hi.is Mannauðsráðgjafi: Auður Inga Ingimarsdóttir audinga@hi.is facebooklinkedintwitter