Samstarf Háskóla Íslands á Hólum og Skagfirðings vegna Landsmóts hestamanna staðfest

Háskóli Íslands á Hólum og Hestamannafélagið Skagfirðingur hafa staðfest samstarf sitt vegna Landsmóts hestamanna 2026 með samningi um afnot af mótssvæði og mannvirkjum á Hólum. Samningurinn var undirritaður áður en Háskóli Íslands á Hólum tók formlega til starfa 1. júlí 2026, þegar skólinn starfaði enn undir nafninu Háskólinn á Hólum.
Landsmót hestamanna 2026 verður haldið á starfssvæði Hestafræðideildar Háskóla Íslands á Hólum. Það gefur augaleið að náið samstarf þarf að vera á milli skólans og þeirra sem standa að framkvæmd mótsins. Samstarfið hefur verið afar farsælt og var það staðfest með samningi um afnot af mótssvæðinu og mannvirkjum skólans.
Samninginn undirrituðu Hólmfríður Sveinsdóttir, þáverandi rektor Háskólans á Hólum og nú forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Elvar Einarsson, formaður Hestamannafélagsins Skagfirðings. Skagfirðingur annast framkvæmd Landsmóts hestamanna á Hólum í sumar.
Fyrir framkvæmdaraðila Landsmóts er það ómetanlegt að njóta náins samstarfs við Háskóla Íslands á Hólum og það öfluga fagfólk sem þar starfar. Jafnframt er það von þeirra sem standa að mótinu að Landsmót hestamanna styrki enn frekar Hóla sem miðstöð menntunar, rannsókna og fagmennsku á sviði reiðmennsku og íslenska hestsins.
Aðstaðan á Hólum til mótahalds er meðal þeirrar bestu sem völ er á hér á landi og skapar sterkan grunn fyrir vel heppnað Landsmót.
Fréttin er unnin upp úr frétt sem birt var á vef Landsmóts hestamanna.
fréttina má lesa hér
