Skip to main content
2. júlí 2026

Nýir sviðs- og deildarforsetar taka til starfa

Nýir sviðs- og deildarforsetar taka til starfa - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tveir nýir sviðsforsetar og 12 deildarforsetar tóku til starfa við Háskóla Íslands 1. júlí. Um leið er ný háskólasamstæða Háskóla Íslands er orðin að veruleika þar sem Háskóli Íslands á Hólum er með þrjár deildir og jafnmarga deildarforseta.

Haraldur Bernharðsson er nýr forseti Hugvísindasviðs og tekur við af Ólöfu Garðarsdóttur. Þá hefur Freyja Hreinsdóttir tekið við starfi forseta Menntavísindasviðs af Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur.

Á Félagsvísindasviði tekur Þóroddur Bjarnason við sem forseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar og Ragna Kemp Haraldsdóttir verður varadeildarforseti, Freydís Freysteinsdóttir verður forseti Félagsráðgjafardeildar og Kolbeinn H. Stefánsson varadeildarforseti. Þá hefur Stefanía Óskarsdóttir tekið við sem forseti Stjórnmálafræðideildar og Hulda Þórisdóttir er varaforseti og fyrr á þessu ári tók Ásta Dís Óladóttir við sem forseti Viðskiptafræðideildar en Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er þar varaforseti.

Á Heilbrigðisvísindasviði tekur Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir við sem forseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og Þóra Jenný Gunnarsdóttir verður varadeildarforseti. Atli Ágústsson tekur við sem námsbrautarstjóri í sjúkraþjálfun og Haraldur Björn Sigurðsson verður til vara.

Á Hugvísindasviði verða breytingar í öllum deilum því þar tekur Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir við sem forseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði og Orri Vésteinsson er varaforseti, Rúnar Már Þorsteinsson verður forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og Sigríður Guðmarsdóttir varaforseti, Ásgrímur Angantýsson verður forseti Íslensku- og menningardeildar og Sif Ríkharðsdóttir varaforseti og loks verður Þórhallur Eyþórsson forseti Mála- og menningardeildar og Kristín Ingvarsdóttir varaforseti.

Á Menntavísindasviði tekur Margrét Sigmarsdóttir við starfi forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda en Ársæll Már Arnarsson leysir hana af til næstu áramóta. Ástríður Stefánsdóttir verður varaforseti deildar. Þá verður Svava Pétursdóttir forseti Deildar kennslu- og menntunarfræði og Sara Margrét Ólafsdóttir varaforseti.

Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði er Hafsteinn Einarsson nýr forseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar og Sigrún Nanna Karlsdóttir varaforseti og þá er Halldór Geirsson nýr varadeildarforseti Jarðvísindadeildar.

Eins og komið hefur fram gengu Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum í háskólasamstæðu nú um mánaðamótin undir merkjum Háskóla Íslands en í því felst að Háskóli Íslands verður samstæðuháskóli en Háskólinn á Hólum starfar sem aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Innan Háskóla Íslands á Hólum eru starfræktar þrjár deildir. Þar er Bjarni Kristófer Kristjánsson forseti Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar, Ingibjörg Sigurðardóttir forseti Ferðamálafræðideildar og Víkingur Gunnarsson forseti Hestafræðideildar.
 

Nýir sviðs- og deilarforsetar innan Háskólasamstæðu HÍ.