Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

Veröld - Hús Vigdísar
VHV 023
Opinn fyrirlestur Cass R. Sunstein, fimmtudaginn 22. október, í tengslum við rannsóknina VAL.
Pr Cass R. Sunstein, prófessor við Harvard-háskóla er einn þekktasti fræðimaður samtímans á sviði atferlishagfræði, laga og opinberrar stefnumótunar. Hann er meðal annars þekktur fyrir rannsóknir sínar á ákvarðanatöku, regluverki, velferð, hniki og því hvernig fólk bregst við upplýsingum, valkostum og hvötum í daglegu lífi.
Í fyrirlestrinum mun prófessor Sunstein fjalla um spurninguna hvort samfélagsmiðlar geri fólk hamingjusamt. Er mikil notkun samfélagsmiðla merki um að þeir auki velferð notenda, eða geta þeir verið dæmi um vörur og þjónustu sem fólk notar þótt það teldi sig betur sett ef þær væru ekki til? Umfjöllunin byggir á nýrri bók Sunsteins, The Price of Happiness: Behavioral Economics and Willingness to Pay, þar sem hann fjallar um greiðsluvilja, velferð, hegðunarskekkjur og þau tilvik þar sem val fólks endurspeglar ekki endilega það sem gerir líf þess betra.
Fólk sem hefur áhuga á atferlishagfræði, samfélagsmiðlum, neytendavernd, opinberri stefnumótun og áhrifum stafræns umhverfis á tíma, vellíðan og ákvarðanir fólks - ættu ekki að missa af þessum fyrirlestri.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Cass R. Sunstein, prófessor við Harvard-háskóla, flytur opinn fyrirlestur við Háskóla Íslands fimmtudaginn 22. október, í tengslum við rannsóknina VAL.
