Sprettur lærdómsfélag fagnar útskrift mentora og opnar fyrir nýjar umsóknir

Á dögunum var hópur mentora á vegum Spretts útskrifaður við hátíðlega athöfn í Aðalbyggingu Háskóla Íslands en Sprettur er nýsköpunarverkefni á sviði menntunar sem miðar að inngildingu og gagnkvæmri aðlögun innflytjenda að háskólanámi.
Undanfarin tvö misseri hafa mentorarnir tekið virkan þátt í að skapa inngildandi samfélag innan háskólans þar sem öll eru velkomin og lagt sitt af mörkum með náms- og félagslegum stuðningi við þátttakendur.
Hlutverk mentora hjá Spretti er fjölbreytt og gefandi. Á skólaárinu stóðu þau fyrir fjölmörgum vinnustofum, spilakvöldum, áhugaverða fyrirlestrum og fjall- og leiðsögugöngum. Samhliða þessu studdu þau þátttakendur í íslensku og öðrum námsgreinum sem kenndar eru við Háskóla Íslands.
Uppskeruhátíð Spretts. Mentorar, þátttakendur, starfsfólk og gestir njóta samverunnar.

Að lokinni útskriftarathöfn var blásið til uppskeruhátíðar í Setbergi, þar sem starfsemi Spretts fer iðulega fram, en verkefnið heyrir undir kennslusvið skólans. Fjöldi mentora, þátttakenda og starfsfólks kom saman til að njóta tónlistar, glæsilegra veitinga, leikja og þeirrar vináttu sem hefur sprottið upp á skólaárinu. Viðstaddir voru beðnir um að lýsa Spretti í einu orði en algengasta orðið var einfaldlega „vinátta“.
Nú er opið fyrir umsóknir um að gerast mentor á næsta skólaári og eru öll, sem hafa áhuga á að taka þátt í öflugu samfélagi, styðja við aðra og öðlast dýrmæta reynslu, hvött til að sækja um. Vert er að taka fram að þátttaka mentora veitir 5 ECTS einingar óháð námsleið.
