Skip to main content
15. júní 2026

Yfir 600 þjóðsagnafræðingar koma saman í Háskóla Íslands 

Yfir 600 þjóðsagnafræðingar koma saman í Háskóla Íslands  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Yfir 600 þjóðsagnafræðingar og fræðafólk á sviði frásagnarannsókna víðs vegar að úr heiminum koma saman í Háskóla Íslands dagana 13.–16. júní þegar alþjóðlega ráðstefnan Nature(s) in Narrative fer fram í Reykjavík. 

Ráðstefnan er haldin á vegum The International Society for Folk Narrative Research, ISFNR, alþjóðlegs fræðafélags sem sameinar sérfræðinga í þjóðsögum, þjóðfræði, frásagnarfræði og skyldum greinum. Ráðstefnan fer fram á háskólasvæði Háskóla Íslands og verður einnig hægt að taka þátt í henni rafrænt.

Yfirskrift ráðstefnunnar er náttúrur í frásögnum og verður sjónum beint að sambandi náttúru í þjóðsagnaefni og frásagna í víðum skilningi. Fjallað verður um það hvernig náttúra, hið yfirnáttúrulega, menning, umhverfi og sjálfsmynd birtast í sögum og frásagnarhefðum ólíkra samfélaga. 

Ráðstefnugestir fá að kynnast íslenskri menningu, heimsækja fjölbreytt söfn, skella sér í sund, taka þátt í dans og söng og njóta náttúrunnar í Viðey. MYND/Gunnar Víðir Þrastarson

Ráðstefnan er haldin af námsbraut í þjóðfræði og safnafræði við Háskóla Íslands, Félagi þjóðfræðinga á Íslandi og Árnastofnun í góðu samstarfi við söfn á höfuðborgarsvæðinu. Hún skapar mikilvægan vettvang fyrir alþjóðlegt samtal um þjóðsögur, frásagnir og menningararf og undirstrikar stöðu Íslands sem áhugaverðs rannsóknarvettvangs þar sem náttúra, saga og frásagnarhefð fléttast saman. Ráðstefnugestir fá líka að kynnast íslenskri menningu, heimsækja fjölbreytt söfn, skella sér í sund, taka þátt í dans og söng og njóta náttúrunnar í Viðey. 

Lykilfyrirlestrarnir eru opnir öllum en meðal hápunkta ráðstefnunnar eru opnar pallborðsumræður með Sjón, rithöfundi og handritshöfundi, Rósu Þorsteinsdóttur, þjóðfræðingi við Árnastofnun, og Ragnheiði Vignisdóttur frá Listasafni Íslands. Viðburðurinn fer fram í Háskólabíói mánudaginn 15. júní kl. 15:30–16:30 og er öllum opinn. 

Nánari upplýsingar má finna á vef ráðstefnunnar.

Gestir ráðstefnunnar í Háskólabíói