Skip to main content
15. júní 2026

Katla Ólafsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði

Katla Ólafsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Stjórnmál ættu kannski fyrst og fremst að hverfast um vináttu og samtal,“ segir Katla Ólafsdóttir, sem útskrifaðist með ágætiseinkunn úr stjórnmálafræði frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.

Áhugi Kötlu á stjórnmálum, tungumálum og menningu kviknaði fyrir alvöru þegar hún bjó í Brussel í Belgíu í 10. bekk og hjólaði daglega fram hjá helstu byggingum Evrópusambandsins á leið í skólann. Eftir heimkomuna fór hún á fornmálabraut í Menntaskólanum í Reykjavík, þar sem hún hafði mikla ánægju af því að læra um fornsögu, latínu og grísku.

Hún valdi stjórnmálafræði við Háskóla Íslands þar sem hún hefur alltaf haft áhuga á samfélagslegum málefnum og því hvernig kerfi virka og hafa áhrif á fólk. „Stjórnmálafræðin er fullkomin fyrir það með sitt breiða fræðasvið sem gerir manni kleift að velja margar ólíkar leiðir í framhaldinu,“ segir hún.

Það sem stóð helst upp úr í náminu var fólkið. Katla segir námið hafa fært sér einstakt tækifæri til að kynnast skemmtilegu fólki með sömu áhugamál, fólki sem verður „aldrei þreytt á því að tala um stjórnmál“. Kennararnir hafi einnig verið mikilvægur hluti af námsupplifuninni, enda sé stjórnmálafræðin ekki mjög stór námsleið og nemendur nái því að mynda gott samband við kennara sína.

Einn af hápunktum námsins var námsferð til Bandaríkjanna þar sem nemendur fóru til New York og Washington D.C. og heimsóttu meðal annars Sameinuðu þjóðirnar, sendiráð Íslands og utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. „Þetta var einstök upplifun og ég mun halda upp á þessa ferð mjög lengi,“ segir Katla.

Það sem kom henni mest á óvart var hversu mörg tækifæri buðust í gegnum námið. Hún tók meðal annars þátt sem sjálfboðaliði á Hringborði Norðurslóða öll þrjú árin og starfaði á síðasta árinu með japanskri sendinefnd, þar sem hún fékk að kynnast Takamado prinsessu af Japan og leiða hana um Hörpu.

Aðspurð um námsráð til nýnema er svarið skýrt: „Mæta í alla fyrirlestra!“ Hún segir fyrirlestrana hjálpa nemendum að sjá samhengi námsefnisins, auðvelda prófundirbúning og byggja upp tengsl við kennara.

Samhliða náminu var Katla virk í stúdentapólitík, mætti á viðburði Politica og starfaði fyrir markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands, þar sem hún hélt fyrirlestra um HÍ í framhaldsskólum víðs vegar um landið.

Nú í júní tók Katla við sem forseti Stúdentaráðs. Hún segir það einstakt tækifæri og er spennt fyrir komandi starfsári þar sem hún vill efla samvinnu og góð samskipti innan Stúdentaráðs og háskólans og gera Stúdentaráð aftur gildandi í samfélagsumræðunni.

Katla er stolt af því að hafa lokið náminu á þremur árum þrátt fyrir mikið álag, prófatarnir og annasama stúdentapólitík. Hún lýsir sér sem manneskju með sterka réttlætiskennd, mikla þrautseigju og ríka ábyrgðarkennd þó að hún geti stundum verið svolítið utan við sig.

Þegar Katla var fimm ára tók leikskólinn hennar þátt í lýðræðisverkefni og hún var spurð hvað stjórnmál væru. Svarið var einfalt: að „tala saman“. Þegar hún var spurð um hvað stjórnmálafólk talaði nefndi hún „um vináttuna“. Kannski var það upphafið að þessari vegferð.

Til hamingju með glæsilegan árangur, Katla!