Skip to main content
15. júní 2026

Árangursríkt samstarf milli Háskóla Íslands og University of Minnesota

Hjúkrun samstarf

Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og University of Minnesota School of Nursing hafa undanfarin 12 ár átt í farsælu samstarfi í gegnum sameiginleg námskeið skólanna á meistara- og doktorsstigi. Samstarfið felst annars vegar í netnámi með aðferðum COIL (Collaborative Online International Learning) þar sem nemendur og kennarar í námskeiðum úr báðum skólum vinna saman yfir vormisseri og hins vegar í sameiginlegu staðnámskeiði sem haldið er árlega í Reykjavík í maí við Háskóla Íslands. Námskeiðin lúta öll að stjórnun og forystu í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu þar sem m.a. er lagt upp úr hnattrænni nálgun og menningarnæmi.

Fyrstu COIL-námskeið skólanna voru haldin vorið 2016 en fyrsta staðnámskeiðið var haldið við Háskóla Íslands í maí 2014. 

Í maí sl. var námskeiðið Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun (Leadership in nursing – a global approach) því haldið í 10. skiptið á 12 árum við Háskóla Íslands. Aðeins á tímum COVID-19 féll staðnámskeiðið niður. Í ár tóku 45 nemendur frá Íslandi og Bandaríkjunum þátt í staðnámskeiðinu með kennurum frá báðum löndum auk kennara frá Mbarara University of Science and Technology í Úganda, sem breikkaði sjóndeildarhring nemendanna og auðgaði umræður. 

Óhætt er að segja að samstarfið milli skólanna auðgi nám beggja og gefi því aukið vægi um leið og það gefur kennurum færi á sjálfsrýni og starfsþróun. Mikil ánægja er með samstarfið sem er traust og gefandi. Bæði nemendur og kennarar hafa í könnunum lýst kennslunni, kennsluaðferðum og efnisþáttum námskeiðanna sem afar gagnlegum og í sumum vilvikum sem umbreytandi í námi og starfi. Samstarfið hefur ekki aðeins leitt til farsællar starfsþróunar kennara og nemenda heldur einnig birtinga fjölmargra vísindagreina. 

Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ er stolt af því að eiga svo stóran hlut í að uppfylla elsta samstarfssamning Háskóla Íslands við annan háskóla.
 

Nemendur og kennarar sem tóku þátt í námskeiðinu Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun í maí 2026. Mynd/Gunnar Sverrisson
Nemendur og kennarar sem tóku þátt í námskeiðinu Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun í maí 2014