Skip to main content
8. júní 2026

Tónar og list í leikskóla: Fyrirlestur og verklegar smiðjur fyrir leikskólakennara 

Tónar og list í leikskóla: Fyrirlestur og verklegar smiðjur fyrir leikskólakennara  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Föstudaginn 29. maí var haldinn fræðsluviðburður á vegum Menntavísindasviðs fyrir kennara á fyrsta skólastiginu sem sinna tónlistariðkun sérstaklega í sínu starfi. Þróunarverkefnið „Tónlist í þremur leikskólum“ var kynnt, en það var styrkt af þróunarsjóði Reykjavíkurborgar „Látum draumana rætast“. 

Þróunarverkefnið byggist á samstarfi leikskólanna Klambra, Nóaborgar og Stakkaborgar við rannsóknarstofu um tónlist og menntun á Menntavísindasviði sem Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor í tónlistarfræðum, leiðir. Einnig var rafrænn söngvabanki fyrir leik- og grunnskóla kynntur og nýtt námsefni í tónlist fyrir leikskólastigið sem er í vinnslu með styrk úr Þróunarsjóði námsgagna.  

Tæplega 80 áhugasamir leikskólakennarar skráðu sig til leiks og var boðið upp á þrjár verklegar smiðjur í aðferðum tónlistariðkunar í daglegu starfi í leikskóla. Smiðjurnar voru leiddar af Birte Harksen, Helgu Rut Guðmundsdóttur og Fríðu Dís Guðmundsdóttur en allar hafa þær sérhæft sig um árabil í tónlistariðkun með mjög ungum börnum. 

Anne Bamford, gestaprófessor við Menntavísindasvið og frömuður í menntunarfræðum á heimsvísu, ávarpar gesti á fræðsluviðburðinum.

Að loknum smiðjum hlýddu þátttakendur á dr. Anne Bamford, gestaprófessor við Menntavísindasvið og frömuð í menntunarfræðum á heimsvísu, en hún er áköf talskona menntunar í skapandi greinum. Fyrirlestur hennar fjallaði um náttúrlega listhneigð barna, mikilvægi lista í menntun og rétt allra barna til listmenntunar og þátttöku í listum. Mikil ánægja var með viðburðinn og afar góð þátttaka í umræðum og verklegum smiðjum.  

Aðstaðan í nýju húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu reyndist einstaklega vel og voru tónlistarstofan og leiklistarstofan nýttar vel ásamt skapandi svæðinu við flygilinn í hinum fornfræga súlnasal. 

Viðburðurinn var góð upphitun fyrir Evrópuráðstefnu MERYC um tónlistarmenntun ungra barna (Music Educators and Researchers of Young Children) sem haldin verður í Sögu 2. - 5. júní 2027. 

Fleiri myndir frá fræðsluviðburðinum má sjá hér að neðan.

Boðið var upp á þrjár verklegar smiðjur í aðferðum tónlistariðkunar í daglegu starfi í leikskóla og hér má sjá þátttakendur í hljóðfærasmiðju.
Þátttakendur í hreyfismiðju nýttu leiklistarstofuna í Sögu vel.
Þriðja smiðjan sem boðið var upp á var þulu- og söngvasmiðja.