Skip to main content
4. júní 2026

Á leið til sumarrannsókna við Caltech-háskóla

Á leið til sumarrannsókna við Caltech-háskóla

Tveir grunnnemar við Háskóla Íslands, þeir Todor Miljevic í verkfræðilegri eðlisfræði og Wiktor Sobczynski í lífefna- og sameindalíffræði, hafa verið valdir til þátttöku í SURF (Summer Undergraduate Research Fellowship) við Caltech (California Institute of Technology) í Bandaríkjunum í sumar. Þar munu þeir vinna að rannsóknaverkefnum í tíu vikur undir handleiðslu vísindamanna við einn fremsta rannsóknaháskóla heims. Todor mun vinna verkefni hjá  Dr. Mohammad Mirhosseini og Wiktor í verkefni hjá Dr. Johannes Morstein. Auk rannsóknavinnunnar taka SURF-nemendur þátt í fjölbreyttri dagskrá á vegum Caltech, þar sem boðið er upp á fyrirlestra, vinnusmiðjur og ýmsa viðburði. 

Todor og Wiktor tóku nýverið við styrk til fararinnar sem nemur 8.110 bandaríkjadölum og er veittur úr sjóði við HÍ sem kenndur er við hjónin Kiyo og Eiko Tomiyasu. Kiyo Tomiyasu var heimskunnur vísindamaður á sviði rafmagnsverkfræði og átti, ásamt Jóni Atla Benediktssyni, fyrrverandi rektor HÍ, lykilþátt í að koma á þessum einstaka samstarfssamningi milli Caltech og Háskóla Íslands árið 2008.   

Frá því samstarfið hófst hafa vel á fimmta tug nemenda frá Háskóla Íslands tekið þátt í SURF-verkefninu við Caltech og að sama skapi hafa fjölmargir Caltech-nemar unnið rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands undir handleiðslu kennara skólans. Í sumar verða  tveir Caltech-nemendur við rannsóknir við Háskóla Íslands. Madison Tongco vinnur verkefni undir handleiðslu Arnars Pálssonar, prófessors við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Brendan J. Rudberg vinnur verkefni hjá Ólafi Pétri Pálssyni, prófessor við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild. 

Við óskum Todor og Wiktor góðrar ferðar og vonum að rannsóknardvölin verði bæði lærdómsrík og ánægjuleg. 
 

Todor Miljevic nemi í verkfræðilegri eðlisfræði og Wiktor Sobczynski nemi í lífefna- og sameindalíffræði, tóku við styrkjunum úr hendi Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors HÍ, nýverið en einnig voru viðstödd Friðrika Harðardóttir, sviðsstjóri Alþjóðasviðs og Elías Rafn Heimisson, rannsóknalektor á Jarðvísindastofnun. MYND/Kristinn Ingvarsson