Skip to main content
28. maí 2026

Styður nýsköpunarsamstarf í hjúkrun milli University of Minnesota og HÍ

Styður nýsköpunarsamstarf í hjúkrun milli University of Minnesota og HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Connie W. Delaney, prófessor og deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar Minnesota-háskóla og heiðursdoktor við Háskóla Íslands, hefur sett á fót styrktarsjóð við Minnesota-háskóla sem ætlað er að styðja við nýsköpunarsamstarf á sviði upplýsingatækni í heilbrigðismálum á milli Hjúkrunarfræðideildar Minnesota-háskóla og Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar HÍ. Delaney var stödd hér á landi á dögunum og kynnti sjóðinn fyrir fulltrúum HÍ, m.a. rektor Háskóla Íslands.

Sjóðurinn mun heyra undir Styrktarsjóði Minnesota-háskóla og ber heitið University of Iceland-University of Minnesota Nursing Innovation Fund. Hann grundvallast á áratugalöngu samstarfi Delaney við íslenska vísindamenn og heilbrigðisstarfsfólk við HÍ og Landspítala. Óhætt er að segja að Delaney hafi haft mikil áhrif á þróun hjúkrunar og heilbrigðisvísinda hér á landi en hún kenndi um árabil bæði við Læknadeild og Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild í námskeiðum um upplýsingatækni í hjúkrun og hefur stutt við aukna nýtingu upplýsingatækni innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Þá hefur hún m.a. átt í löngu rannsóknasamstarfi við Ástu Thoroddsen,  prófessor emeritu í hjúkrunarfræði, og fleiri vísindamenn við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hefur verið heiðursdoktor við deildina frá árinu 2011.

Delaney er afar áhrifamikill vísindamaður og hefur verið  í forystu á heimsvísu um að innleiða upplýsingatækni og stafræna tækni í menntun, rannsóknum og á vettvangi hjúkrunar og á öðrum sviðum heilbrigðisvísinda. Frumkvöðlastarf hennar nær m.a. til söfnunar kóðaðra gagna um hjúkrun úr rafrænum sjúkraskrám sem leiddu til þróunar og innleiðingar á skráningu vistunarupplýsinga í hjúkrun og hjúkrunarstjórnun um víða veröld. Þá hefur hún verið bandarískum stjórnvöldum til ráðgjafar um þessi mál, m.a. í forsetatíð Baracks Obama. Fyrir þetta brautryðjendastarf útnefndi Bandaríska hjúkrunarakademían Delaney „goðsögn í lifanda lífi“ (e. Living Legend) árið 2025.

Sjóðnum sem Delaney hefur forystu um að setja á laggirnar er ætlað að styðja við enn frekari framfarir á áðurnefndum sviðum. Hann  mun styrkja samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Minnesota-háskóla á sviði nýsköpunar í upplýsinga- og samskiptatækni í hjúkrun og heilbrigðisvísindum almennt. Um leið treystir hann enn frekar samstarf skólanna tveggja, en Minnesota-háskóli var fyrsti erlendi skólinn sem HÍ gerði tvíhliða samstarfssamning við fyrir nærri 45 árum.

Connie Delaney heimsótti Ísland í liðinni viku og átti þá fundi bæði með fulltrúum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og Silju Báru R. Ómarsdóttur rektor þar sem hún kynnti styrktarsjóðinn. Auk þess hitti hún nemendur og kennara í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild þar sem stóð yfir sameiginlegt námskeið HÍ og Minnesota-háskóla um forystu í hjúkrun.
 

Frá heimsókn Connie Delaney á rektorsskrifstofu en hún er hér ásamt rektor, forseta Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, fulltrúum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og sviðsstjóra Alþjóðasviðs.