Hvetja fólk með liðagigt til að hreyfa sig meira

Dósent í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands er meðal höfunda nýrra og uppfærðra ráðlegginga á vegum Evrópusamtaka um gigtarlækningar þar sem fólk með liðagigt er hvatt til að hreyfa sig meira. Ráðleggingarnar eru birtar í einu af virtustu vísindatímaritum heims á sviði gigtarlækninga.
Liðagigt nær yfir hóp liðasjúkdóma þar sem ónæmiskerfið ræðst á frumur í líkamanum með þeim afleiðingum að bólgur og skemmdir verða í liðamótum á útlimum. Undir slíka gigt heyra bæði sjálfsofnæmissjúkdómar og slitgigt og er liðagigt ein af helstu orsökum líkamlegrar fötlunar í Evrópu. Rannsóknir hafa enn fremur sýnt að þær bólgur sem fylgja sjúkdómnum geta ásamt kyrrsetulífsstíl aukið hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, vandamálum tengdum efnaskiptum líkamans og ákveðnum tegundum krabbameins og þannig aukið enn frekar álag á heilbrigðiskerfi. Til að hindra framrás og fylgikvilla sjúkdómsins (króníska verki, þreytu og sjúkdóma) og fjölkvilla (t.d. hjarta- og æðasjúkdóma og efnaskiptasjúkdóma) er þörf á bæði lyfjameðferðum og annars konar meðferðum við sjúkdómnum. Hreyfing er talin ein öflugasta leiðin til að efla heilsu, virkni og lífsgæði fólks með liðagigt.
Til þess að stuðla að aukinni hreyfingu og þar með bættum lífsgæðum þessa hóps hefur alþjóðlegur hópur sérfræðinga, alls 26 manns frá 17 löndum, birt nýjar ráðleggingar á vegum Evrópusamtaka um gigtarlækningar (European Alliance of Associations for Rheumatology – EULAR) um hreyfingu fyrir fólk með liðagigt. Þær leysa af hólmi eldri ráðleggingar sem gefnar voru út fyrir tæpum áratug. Meðal höfunda ráðlegginganna er Denislav Orlinov, dósent í sjúkraþjálfun við Læknadeild HÍ.

Upplýsingamynd með ráðleggingum Evrópusamtaka um gigtarlækningar (European Alliance of Associations for Rheumatology – EULAR).
Ráðleggingarnar er að finna í Annals of the Rheumatic Diseases, einu af helstu vísindatímaritum heims á sviði gigtarlækninga, og eru hugsaðar sem leiðbeiningar bæði fyrir heilbrigðisstarfsfólk, rannsakendur og sjúklinga bæði í Evrópu og annar staðar í heiminum. Í ráðleggingunum er undirstrikað að hreyfing eigi að vera óaðskiljanlegur hluti af hefðbundinni umönnun fólks með liðagigt um leið og áhersla er lögð á að draga úr kyrrsetu hjá þessum hópi og að nýta stafræna tækni til að styðja við hreyfingu til langtíma.
„Enn þann dag í dag veigrar margt fólk með liðagigt sér við því að hreyfa sig þar sem það telur að einkennin muni versna við það en rannsóknir sýna glöggt að það er óhætt að hreyfa sig,” segir Denislav Orlinov og bætir við: „Jafnvel lítilsháttar hreyfing yfir daginn getur bætt heilsu og lífsgæði.“
Denislav segir næst á döfinni að innleiða þessar alþjóðlegu ráðleggingar í heilbrigðiskerfum landa „og við munum hefja þá vinnu hér á landi fljótlega.“
