Skip to main content

Diplóma í sjálfbærni viðburða, Grunndiplóma

Diplóma í sjálfbærni viðburða, Grunndiplóma

Sjálfbærni viðburða

Grunndiplóma – 60 einingar

Í diplómanámi í sjálfbærni viðburða er lögð áhersla á umhverfisstjórnun og sjálfbæra þróun. Námið hentar t.d. þeim sem vilja starfa við umhverfisstjórnun, viðburðastjórnun, verkefnastjórnun, ferðaþjónustu eða tengdar greinar. Nemendur öðlast þekkingu á sviði sjálfbærni og viðburðahalds og kynnast öryggismálum og lagaumhverfi viðburða.

Skipulag náms

X

Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun (RFV3206170)

Námskeiðið er kynning á grundvallaratriðum rannsóknahefða, hugmyndafræði og kenningaramma í félagsvísindum. Fjallað er um helstu áfanga í rannsóknaferli frá afmörkun viðfangsefnis til miðlunar á niðurstöðum rannsóknar. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk heimildavinnu við gerð yfirlits um stöðu þekkingar. Farið verður í það hvernig á að greina fræðileg rök og fullyrðingar um þekkingu á sviði ferðamálafræði og viðburðastjórnunar út frá helstu áföngum rannsóknaferlis s.s. afmörkun viðfangsefnis, skilgreiningu hugtaka, val rannsóknaraðferða, tengingu við kenningaramma, rannsóknarhefða og fyrirliggjandi rannsókna. Markmiðið er að þróa skilning nemenda á tengslum fræða og framkvæmdar í rannsóknum.

X

Umhverfisfræði (UMH1406120)

Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

 

X

Verklag í námi og starfi (VNS1006120)

Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

X

Inngangur að viðburðastjórnun (VBS2106210)

Fjallað er um eðli viðburða og fjölbreytileika þeirra, innanlands og á alþjóðavísu. Fjallað um tengsl viðburða og ferðaþjónustu. Kynntar eru aðferðir við skipulag, framkvæmd og gæðamat viðburða. Fjallað er um lög, reglur og öryggisatriði sem snúa að viðburðum.  Áhersla er lögð á að kynna nemendum ferlið frá hugmynd til framkvæmdar á viðburði. Fjallað er um áætlanagerð og mat á áhrifum viðburða.

 

X

Upplifunarhönnun og viðburðir (UHV4606170)

Í námskeiðinu er fjallað um hvernig hanna má upplifun þátttakenda í viðburðum á markvissan og skapandi hátt. Nemendur kynnast hugmyndafræðinni að baki upplifunarhönnun (e. experience desing). Áhersla er lögð á að nemendur skilji hvernig upplifun gesta mótast af samspili rýmis, stemningar, frásagnar, þjónustu og þátttöku. Kynnt verða verkfæri til að öðlast dýpri skilning á þessum þáttum og hvernig má hanna upplifun með merkingu að leiðarljósi (e. design for meaning). Nemendur kynnast kenningum um upplifunarhagkerfið (e. experience economy) og læra hvernig nýta má þær við þróun viðburða sem skapa eftirminnileg og merkingarbær augnablik fyrir þátttakendur. Skynjun er ein af lykilþáttum upplifunarhönnunar. Útivera, staðarvitund og náttúruupplifun verða m.a. nýtt í námskeiðinu til að varpa ljósi á hvernig þessi þættir geta skapað eftirsóknarverða upplifun. Nemendur vinna með raunveruleg dæmi úr viðburðageiranum og þróa eigin hugmynd að viðburði þar sem upplifunarhönnun er í forgrunni. Lögð er áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun og hagnýta notkun fræðilegra hugmynda við skipulagningu viðburða.

X

Ábyrg stefnumótun og verkefnastjórn (ÁSV4406170)

Námskeiðið fjallar um ábyrga mótun stefnu og stjórn verkefna þar sem leitast er við að undirbúningur, framkvæmd og frágangur viðburða og annarra verkefna sé í samræmi við sjálfbærnimarkmið sameinuðu þjóðanna og viðmið um ábyrga ferðamennsku og stjórnun.

Fjallað er um hugtök eins og sjálfbærni, ábyrga ferðamennsku/viðburði og nærandi ferðamennsku og innsýn veitt í þekkingarlegan bakgrunn þessara fræða. Fjallað er um tengsl og hlutverk mismunandi hagaðila í ábyrgu viðburðahaldi og ferðamennsku.

Nemendur læra að móta stefnu í  málefnum viðburðahalds og ferðamennsku út frá hagsmunum ólíkra hagaðila og öðlast innsýn í stjórn verkefna s.s. hjá  einstaklingum, frjálsum félögum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum stjórnvaldsaðilum. Einnig er fjallað um gerð aðgerðaáætlunar til að fylgja eftir stefnu og styðja við stjórn verkefna.

X

Hagnýtt lokaverkefni (HLV4506170)

Í hagnýtu lokaverkefni gefst nemendum tækifæri á að sérhæfa sig í viðfangsefni að eigin vali í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Nemandi skilar einu verkefni í lok námskeiðs. Verkefni skal unnið í samræmi við leiðbeinandi handbók námskeiðsins um framkvæmd verkefnisins. Nemandi vinnur sjálfstætt að gerð verkefnisins samkvæmt leiðbeiningunum. Ekki er gert ráð fyrir að nemandi safni frumgögnum líkt og um rannsóknaverkefni sé að ræða, heldur er áhersla lögð á hagnýta greiningu viðburðahalds með áherslu á umhverfisstjórnun og ábyrga þróun.

X

Græn framtíð – skapandi lausnir (GFS4306170)

Námskeiðið fjallar um innleiðingu sjálfbærni og ábyrgðar í þróun og framleiðsluferlum viðburða, sjónvarpsefnis, kvikmyndagerðar og öðrum skapandi greinum. Rýnt er í með hvaða hætti slíkar greinar geta með smáum en markvissum skrefum náð aukinni sjálfbærni og þannig mætt nútíma kröfum og viðmiðum í sjálfbærni í viðburðahaldi og framleiðslu t.d. í kvikmyndagerð. Áhersla er lögð á ábyrgð þeirra sem að málum koma á öllum stigum viðburðahalds og framleiðslu. M.a. er fjallað um sjálfbærni, innleiðingu ábyrgra starfshátta, losun, sviðssetningu, eftirvinnslu og vottunarferli.

X

Stjórnun (STJ2006120)

Viðfangsefni námskeiðsins í stjórnun eru stjórnunarferlið, helstu stjórnunarkenningar og þróun þeirra. Ennfremur er hlutverk stjórnenda, í síbreytilegu viðskiptaumhverfi, skoðað s.s. færni, persónueinkenni, stjórnunarstíll og ábyrgð sem tengist vinnustaðamenningu, hagaðilum fyrirtækis, viðskiptasiðferði og frumkvöðlastarfi. Farið er í helstu störf stjórnanda s.s. markmiðssetningu, stefnumótun, áætlanagerð, skipulag, leiðsögn og eftirlit ásamt skipulagi fyrirtækis, starfa og verkefnisstjórnun. Grunnatriði mannauðsstjórnunar eru til skoðunar s.s. leiðtogastarf, hvatning, val og ráðning starfsfólks og leiðir til að mæta fjölbreytileika í starfsmannahópnum. Að síðustu er farið í það hvernig stýra má hópum/teymum til árangurs, leysa vandamál sem upp koma og auka starfsánægju.
Í verkefnum námskeiðsins eru hugtök, kenningar og líkön stjórnunar prófuð og sannreynd í ferðaþjónustufyrirtækjum.

X

Lög, reglur og öryggi (LRÖ2306170)

Viðfangsefni námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er farið yfir lög, reglugerðir og leyfisveitingar er varða ferðaþjónustu, m.a. veitinga- og gististaði. Hins vegar er fjallað um öryggismál í ferðaþjónustu. Rætt er um samstarf hins opinbera við einkaaðila á sviði ferðamála, og hvaða þýðingu aðkoma stjórnvalda hefur á þróun og afkomu greinarinnar, gegnum lög og reglugerðir. Fjallað um öryggismál ferðaþjónustu í heild og í samhengi mismunandi tegunda ferðaþjónustu, veitinga- og gististaða. Skoðað er samstarf ferðaþjónustu, stjórnvalda og sjálfboðaliðahreyfinga um öryggismál. Þá eru skoðaðar mismunandi leiðir til þess að koma upplýsingum um lög, reglur og öryggismál á framfæri til erlendra og innlendra ferðamanna.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Aðalbygging háskóla íslands á Hólum