Viðburðastjórnun, Grunndiplóma



Viðburðastjórnun
Grunndiplóma – 60 einingar
Í diplómanámi í viðburðastjórnun verða nemendur verði færari í að skipuleggja, fjármagna og stýra viðburðum, frá upphafi til enda. Áhersla er á samþættingu hagnýtra og fræðilegra þátta viðburðastjórnunar.
Skipulag náms
- Haust
- Ferðamál og viðburðir
- Fjárhagur og rekstur
- Markaðsfræði
- Inngangur að viðburðastjórnun
- Verklag í námi og starfi
- Vor
- Menning og skapandi greinar
- Gestamóttaka, gisting og veitingar
- Straumar og stefnur í viðburðastjórnun
- Verknám í viðburðastjórnun
Ferðamál og viðburðir (FER1206120)
Í námskeiðinu er fjallað um málefni sem tengjast ferðamálum og viðburðum þar sem áfangastaðurinn Ísland er meginviðfangsefnið. Efnið verður jafnóðum sett í alþjóðlegt samhengi þar sem kynnt eru helstu hugtök og kenningar. Farið verður stuttlega í sögu og þróun ferðamála. Unnið verður með kerfi ferðamála og viðburða, þróun áfangastaða, stjórnsýslu og stoðkerfi ferðamála og viðburða og áhrif á samfélög, efnahag og umhverfi.
Námskeiðið er eitt þeirra sem liggja til grundvallar landvarðarréttinda í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Fjárhagur og rekstur (FJR1106120)
Fjallað er um grundvallaratriði tvíhliða bókhalds og bókhaldshringrásin rakin, farið yfir lög um bókhald og ársreikninga. Fjallað verður um flokkun gagna, bókhaldshugtök, uppsetningu bókhaldsskráningar og færslu bókhalds. Fjallað er um tekju- og útgjaldaskráningu út frá ólíkum rekstrarformum, sem og lögum og reglum um virðisaukaskatt. Einnig er fjallað um meðferð og uppgjör vörsluskatta, s.s. virðisaukaskatts og gistináttaskatts. Fjallað er um markmið rekstrar, rekstraruppgjör og tilgang ársreikninga, auk þess sem lesið verður í ársreikninga og samspil rekstrar- og efnahagsreikninga skýrt. Þá verður fjallað um laun og reiknað endurgjald, launauppgjör, kjarasamninga og skyldur launagreiðenda.
Markaðsfræði (MAR1306120)
Fjallað er um hugmyndafræði markaðsfræðinnar og nýtingu hennar sem stjórntækis í rekstri fyrirtækja með sérstaka áherslu á þjónustufyrirtæki. Fjallað um helstu lykilhugtök og skilgreiningar, innri greiningu fyrirtækja, markaðsrannsóknir og greiningu markhópa. Fjallað um verðlagningu og vöruþróun, markaðssamskipti og almannatengsl. Sérstaklega verður fjallað um markaðssetningu ferðaþjónustu og viðburða á netinu, einkum á samfélagsmiðlum.
Inngangur að viðburðastjórnun (VBS2106210)
Fjallað er um eðli viðburða og fjölbreytileika þeirra, innanlands og á alþjóðavísu. Fjallað um tengsl viðburða og ferðaþjónustu. Kynntar eru aðferðir við skipulag, framkvæmd og gæðamat viðburða. Fjallað er um lög, reglur og öryggisatriði sem snúa að viðburðum. Áhersla er lögð á að kynna nemendum ferlið frá hugmynd til framkvæmdar á viðburði. Fjallað er um áætlanagerð og mat á áhrifum viðburða.
Verklag í námi og starfi (VNS1006120)
Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.
Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.
Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.
Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.
Menning og skapandi greinar (MSG2406170)
Í námskeiðinu er fjallað um hugtakið menningu í fortíð og nútíð. Fjallað er um samspil menningar, viðburða, ferðamála og skapandi greina út frá alþjóðlegu sjónarhorni og íslensku. Farið verður í ýmis lykilhugtök eins og menningu, menningararf, skapandi greindar, framboð og eftirspurn menningar, upprunaleika, upplifunar- og skapandi ferðamennsku, miðlun og túlkun menningar, félags- og menningarleg þolmörk sem og tengsl gesta og gestgjafa. Nemendur skilgreina menningarferðamennsku og -ferðaþjónustu á Íslandi ásamt miðlun og túlkun menningar í hvers konar menningarstofnunum í landinu. Nemendur fá innsýn inn í fjölbreytt störf og verkefni í skapandi greinum.
Gestamóttaka, gisting og veitingar (GGV1506120)
Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði gestamóttöku og þau samskipti sem henni fylgja, ásamt þróun hugtaksins gestrisni (e. hospitality). Móttaka gesta fer fram hvar sem er í ferðaþjónustu, svo sem á hótelum, veitingahúsum, afþreyingarfyrirtækjum, upplýsingamiðstöðvum. Farið er yfir hvað þarf að hafa í huga við móttöku gesta til að upplifun þeirra sé sem best. Í námskeiðinu eru bæði bókleg verkefni og verklegar æfingar með tengingu við þau gæðakerfi sem notuð eru í íslenskri ferðaþjónstu.
Straumar og stefnur í viðburðastjórnun (SSV2506170)
Námskeiðinu er ætlað að ná utan um þann mikla fjölbreytileika sem einkennir flóru viðburða hérlendis og á alþjóðavísu. Ýmsar gerðir viðburða eru kynntar s.s. íþróttaviðburðir, tónlistarhátíðir, hátíðisdagar, persónulegir viðburðir, matartengdir viðburðir, bæjarhátíðir, ráðstefnur og fundir.
Fjallað verður um nýjustu strauma, stefnur og kenningar í viðburðastjórnun í nútímanum s.s. tækninýjungar, öryggisgæslu, sviðsetningu, samskipti við fjölmiðla og fleira. Námskeiðið verður að hluta til byggt á efni sem sérhæfðir gestafyrirlesarar leggja til.
Gert er ráð fyrir að nemendur í námskeiðinu haldi ráðstefnu um stöðu viðburðastjórnunar á Íslandi í lok námskeiðs.
Verknám í viðburðastjórnun (VEV2012120)
Nemandi velur sér verknámsstað í samráði við umsjónarkennara námskeiðsins. Þegar verknámsstaður er fundinn er gerður samningur milli nemanda, leiðbeinanda á verknámsstað og Háskólans á Hólum. Ferðamáladeild er í samstarfi við fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki um allt land og getur umsjónarkennari námskeiðsins aðstoðað við valið.
Verknámið felst í 200 stunda vinnu nemanda á verknámsstað s.s. þeirri að fylgjast með og rýna í verklag ásamt því að taka þátt í undirbúningi, skipulagi, framkvæmd og eftirvinnslu viðburðar. Nemandi heldur nákvæma vinnudagbók þar sem viðfangsefni dagsins eru greind, verklag rýnt af gagni og hugleiðingar um reynsluna skráðar. Nemandi skilar fjórum greiningarverkefnum og er reiknað með 150 - 180 tímum í gerð þeirra.
Vinnutími er á þeim tíma sem viðgengst á viðkomandi verknámsstaðnum. Mögulegt er að skipta verknámi upp í styttri tímabil eftir því hvernig verkefni raðast eða dreifa því á lengri tíma. Slíkt er samkomulagsatriði við leiðbeinanda á verknámsstað og umsjónarkennara námskeiðsins.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.
Fylgdu HÍ á Hólum á:
Facebook, Youtube, Instagram, TikTok
