Ferðamálafræði, Grunndiplóma



Ferðamálafræði
Grunndiplóma – 90 einingar
Diplómanám í ferðamálafræði frá HÍ á Hólum er byggt á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og er áhersla er lögð á ferðaþjónustu sem tengist menningu og náttúru. Samhliða diplómagráðunni öðlast nemendur landvarðarréttindi í samstarfi við Náttúruverndarstofnun.
Skipulag náms
- Haust
- Markaðsfræði
- Umhverfisfræði
- Verklag í námi og starfi
- Ferðamál og viðburðir
- Fjárhagur og rekstur
- Vor
- Upplifun og afþreying ferðafólks
- Gestamóttaka, gisting og veitingar
- Gönguferðir, leiðsögn og stígagerð
- Náttúra Íslands
- Menning og skapandi greinar
- Sumar
- Verknám í ferðamálafræði
Markaðsfræði (MAR1306120)
Fjallað er um hugmyndafræði markaðsfræðinnar og nýtingu hennar sem stjórntækis í rekstri fyrirtækja með sérstaka áherslu á þjónustufyrirtæki. Fjallað um helstu lykilhugtök og skilgreiningar, innri greiningu fyrirtækja, markaðsrannsóknir og greiningu markhópa. Fjallað um verðlagningu og vöruþróun, markaðssamskipti og almannatengsl. Sérstaklega verður fjallað um markaðssetningu ferðaþjónustu og viðburða á netinu, einkum á samfélagsmiðlum.
Umhverfisfræði (UMH1406120)
Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Verklag í námi og starfi (VNS1006120)
Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.
Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.
Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.
Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.
Ferðamál og viðburðir (FER1206120)
Í námskeiðinu er fjallað um málefni sem tengjast ferðamálum og viðburðum þar sem áfangastaðurinn Ísland er meginviðfangsefnið. Efnið verður jafnóðum sett í alþjóðlegt samhengi þar sem kynnt eru helstu hugtök og kenningar. Farið verður stuttlega í sögu og þróun ferðamála. Unnið verður með kerfi ferðamála og viðburða, þróun áfangastaða, stjórnsýslu og stoðkerfi ferðamála og viðburða og áhrif á samfélög, efnahag og umhverfi.
Námskeiðið er eitt þeirra sem liggja til grundvallar landvarðarréttinda í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Fjárhagur og rekstur (FJR1106120)
Fjallað er um grundvallaratriði tvíhliða bókhalds og bókhaldshringrásin rakin, farið yfir lög um bókhald og ársreikninga. Fjallað verður um flokkun gagna, bókhaldshugtök, uppsetningu bókhaldsskráningar og færslu bókhalds. Fjallað er um tekju- og útgjaldaskráningu út frá ólíkum rekstrarformum, sem og lögum og reglum um virðisaukaskatt. Einnig er fjallað um meðferð og uppgjör vörsluskatta, s.s. virðisaukaskatts og gistináttaskatts. Fjallað er um markmið rekstrar, rekstraruppgjör og tilgang ársreikninga, auk þess sem lesið verður í ársreikninga og samspil rekstrar- og efnahagsreikninga skýrt. Þá verður fjallað um laun og reiknað endurgjald, launauppgjör, kjarasamninga og skyldur launagreiðenda.
Upplifun og afþreying ferðafólks (UAF1706170)
Fjallað um kenningar um eðli frístunda, afþreyingar og upplifunar. Rætt verður um gildi afþreyingar í nútíma samfélagi, framboð hennar og eftirspurn. Sérstök áhersla verður lögð á eðli upplifunar og leiðir til þess að gera afþreyingu ferðamannsins að því ævintýri (adventure) sem sóst er eftir.Rætt verður um ólíka hvata og væntingar til afþreyingar og mikilvægi þess að öll áhætta sé lágmörkuð þannig að jákvæð upplifun ferðamannsins sé sem best tryggð.
Gestamóttaka, gisting og veitingar (GGV1506120)
Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði gestamóttöku og þau samskipti sem henni fylgja, ásamt þróun hugtaksins gestrisni (e. hospitality). Móttaka gesta fer fram hvar sem er í ferðaþjónustu, svo sem á hótelum, veitingahúsum, afþreyingarfyrirtækjum, upplýsingamiðstöðvum. Farið er yfir hvað þarf að hafa í huga við móttöku gesta til að upplifun þeirra sé sem best. Í námskeiðinu eru bæði bókleg verkefni og verklegar æfingar með tengingu við þau gæðakerfi sem notuð eru í íslenskri ferðaþjónstu.
Gönguferðir, leiðsögn og stígagerð (GÖL1606120)
Fjallað er um starf, hlutverk og ábyrgð gönguleiðsögumanna og landvarða á breiðum grundvelli. Farið verður yfir grunnþætti gönguleiðsagnar og ferðamennsku á fjöllum þ.m.t. undirbúning, útbúnað, öryggismál, rötun, leiðaval og leiðsögn.
Fjallað er um hlutverk og ábyrgð landvarða og gönguleiðsögumanna gagnvart náttúrunni og upplýsinga- og fræðsluskyldu gagnvart ferðamönnum. Fjallað verður um gildi fræðslu fyrir ferðamenn og farið verður yfir hagnýta þætti við skipulag, undirbúning og framkvæmd fræðslu í gönguferðum.
Sérstaklega er fjallað um hugmyndafræði náttúrutúlkunar og farið yfir helstu grundvallaratriði og aðferðir. Lögð er áhersla á að nemendur noti aðferðir náttúrutúlkunar í verkefnum á vettvangi.
Fjallað verður um uppbyggingu og viðhald gönguleiða og –stíga. Farið verður í leiðarval á gönguleiðum, viðgerðir á illa förnum göngustígum, tröppugerð, viðbrögð við vandamálum tengdum vatni og leysingum, o.fl. Þessi hluti námskeiðsins er skipulagður í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Náttúra Íslands (NÁT1806120)
Gefið verður yfirlit yfir lífríki, veðurfar og jarðfræði landsins. Fjallað verður um helstu hópa lífvera á landi, í fjöru, í ferskvatni og í sjó, svo sem gróður, smádýr, fiska, fugla og spendýr. Fjallað verður um jarðfræði og uppruna Íslands, berggerðir, landslag, gerðir eldgosa og eldstöðva, jarðhita, og landmótun með sérstakri áherslu á jarðfræðilega fjölbreytni Íslands. Fjallað verður um vistfræði og samverkun hinnar lifandi og lífvana náttúru.
Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Menning og skapandi greinar (MSG2406170)
Í námskeiðinu er fjallað um hugtakið menningu í fortíð og nútíð. Fjallað er um samspil menningar, viðburða, ferðamála og skapandi greina út frá alþjóðlegu sjónarhorni og íslensku. Farið verður í ýmis lykilhugtök eins og menningu, menningararf, skapandi greindar, framboð og eftirspurn menningar, upprunaleika, upplifunar- og skapandi ferðamennsku, miðlun og túlkun menningar, félags- og menningarleg þolmörk sem og tengsl gesta og gestgjafa. Nemendur skilgreina menningarferðamennsku og -ferðaþjónustu á Íslandi ásamt miðlun og túlkun menningar í hvers konar menningarstofnunum í landinu. Nemendur fá innsýn inn í fjölbreytt störf og verkefni í skapandi greinum.
Verknám í ferðamálafræði (VEF2030120)
Nemandi velur sér verknámsstað í samráði við umsjónarkennara námskeiðsins. Þegar verknámsstaður er fundinn er gerður samningur milli nemanda, leiðbeinanda á verknámsstað og Háskólans á Hólum. Ferðamáladeild er í samstarfi við fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki á landinu og getur umsjónarkennari verknáms aðstoðað við val á verknámsstað.
Verknámið felst í 8 - 9 vikna vinnu nemanda hjá viðurkenndu ferðaþjónustufyrirtæki og á nemandi að fá reynslu af fjölbreyttum verkefnum sem og innsýn í stjórnun og rekstur viðkomandi verknámsstaðar. Vinnutími tekur mið af vinnuskipulagi verknámsstaðar. Samhliða verknámi heldur nemandi nákvæma dagbók þar sem viðfangsefni verknámsins, hugleiðingar, greiningar og áætlanir um verkefnin og reynsla er skráð. Ennfremur vinnur hann að hagnýtum bóklegum verkefnum sem eiga að leiða hann áfram í því að tvinna saman fræðilega þekkingu úr námi við störf í ferðaþjónustu. Lykilhugtök taka mið af námskeiðum tengdum viðkomandi viðfangsefnum.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.
Fylgdu HÍ á Hólum á:
Facebook, Youtube, Instagram, TikTok
