Skip to main content
22. maí 2026

Tuttugu og fjögur brautskráð frá Jafnréttisskóla GRÓ

Tuttugu og fjögur brautskráð frá Jafnréttisskóla GRÓ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tuttugu og fjórir nemendur frá fimmtán löndum brautskráðust frá Jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ GEST) við Háskóla Íslands á fjölsóttri athöfn í Hátíðasal skólans fimmtudaginn 21. maí. Þetta er í 18. sinn sem skólinn brautskráir nemendur.

Í nemendahópnum í ár voru fulltrúar frá Malaví, Pakistan, Madagaskar, Úkraínu, Kenía, Nígeríu, Síerra Leóne, Líbanon, Tansaníu, Gana, Úganda, Srí Lanka, Kamerún, Indlandi og Nepal. Þeir bætast nú í stóran hóp alþjóðlegra sérfræðinga sem lokið hafa námi á vegum GRÓ GEST en heildarfjöldi brautskráðra frá upphafi er 291 kandídatar frá 40 löndum. 

Nemendurnir komu til landsins í janúar og hafa undanfarna fimm mánuði lagt hart að sér í námi. Þau hafa sótt námskeið og vinnustofur, sinnt hópavinnu, heimsótt stofnanir hér á landi og unnið viðamikið lokaverkefni. Alls sóttu nemendurnir fimm námslotur auk þess að vinna lokaverkefnið og hafa nú útskrifast með diplómagráðu á framhaldsstigi í alþjóðlegum jafnfréttisfræðum frá Háskóla Íslands.

Útskriftarathöfnin í Hátíðasal hófst á opnunarávarpi Irmu Erlingsdóttur, prófessors og forstöðumanns GRÓ GEST, sem færði hópnum hamingjóskir með að ljúka krefjandi misseri í Háskóla Íslands. Ávörp á útskriftinni fluttu einnig Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Þá var einnig boðið upp á tónlistaratriði en þeir Unnsteinn Manuel Stefánsson og Tómas Jónsson fluttu lögin Er þetta ást? og Glow.

Að lokinni afhendingu útskriftarskírteina fluttu tveir kandídatar úr hópnum, Georgio Al Chidiac, nemi frá Líbanon, og Norah Lumnyi Ngwa, nemi frá Kamerún, ávarp fyrir hönd útskriftarhópsins. Þar lýstu þau því hvernig það hefði verið að koma hingað til lands um miðjan vetur í kulda og myrkri í krefjandi nám og hvernig samheldni hópsins hefði fleytt þeim áfram í gegnum námið. Tengsl hefðu myndast innan hópsins sem næðu langt út fyrir skólastofuna og nemendur hefðu veitt hver öðrum stuðning í glímu við ágreining, heimþrá, veikindi, verkefni í skólanum og áskoranir hversdagsins. Þau luku ávarpinu á að horfa til framtíðar. „Við snúum aftur heim ekki aðeins nestuð nýrri þekkingu heldur með von, hvata og ekki síst ábyrgðartilfinningu gagnvart því verkefni að þoka áfram, spyrja spurninga um og berjast fyrir þeim breytingum sem við trúum á.“

Útskriftarnemarnir halda nú til síns heima og líkt fyrri útskriftarárgangar munu þau án efa láta til sín taka á fjölbreyttum vettvangi, þar á meðal hjá stofnunum, háskólum, félagasamtökum, fjölmiðlum, grasrótahreyfingum og samfélögum víða um heim. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Tvö lokaverkefni verðlaunuð

Verðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands og verndara Jafnréttisskóla GRÓ, voru veitt fyrir bestu lokaverkefnin í tveimur flokkum. Verkefni nemenda voru af ýmsu toga og snertu m.a. lýðheilsu, stjórnmálaþátttöku, menntun, fólksflutninga, forvarnir gegn ofbeldi, karlmennsku, umbreytingu stofnana og samfélaga og þætti tengda kynjuðu valdi sem móta hversdagslíf fólks. 

Í flokki hagnýtra verkefna hlaut dr. Gloria E. Swilla, nemi frá Tansaníu, verðlaun fyrir verkefnið „Addressing Gender Disparities in Antimicrobial Resistance: Empowering Women and Engaging Men in Shinyanga Region, Tanzania“.

Í flokki rannsóknaverkefna hlaut Daryna-Mariia Zavhorodnia, nemi frá Úkraínu, verðlaun fyrir verkefnið „The Impact of Russia’s Full-Scale War on Women’s Political Participation in Ukraine“.

Útskriftarnemarnir halda nú til síns heima og líkt fyrri útskriftarárgangar munu þau án efa láta til sín taka á fjölbreyttum vettvangi, þar á meðal hjá stofnunum, háskólum, félagasamtökum, fjölmiðlum, grasrótahreyfingum og samfélögum víða um heim.

Háskóli Íslands óskar útskriftarhópnum innilega til hamingju með áfangann og velgengni í þeim verkefnum sem nú taka við. 

Um GRÓ GEST

Jafnréttisskóli GRÓ heyrir undir Hugvísindasvið Háskóla Íslands en starfsemi hans er þverfagleg og taka þátt í starfsemi hans, sem kennarar og leiðbeinendur, sérfræðingar af öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands auk fjölmargra gestaprófessora sem koma frá samstarfsháskólum í ólíkum heimshornum. Skólinn starfar undir merkjum GRÓ – þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.

Ítarlegri umfjöllun um brautskráninguna (á ensku) má finna á vef GRÓ GEST.

Útskriftarhópurinn ásamt kennurum og starfsfólki Jafnréttisskóla GRÓ, forstöðumanni GRÓ – þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, rektor HÍ og forseta Hugvísindasviðs