Skip to main content

Heimsdagur hafsins 8. júní - málþing

Heimsdagur hafsins 8. júní - málþing - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. júní 2026 12:30 til 15:30
Hvar 

Björtuloft, Harpa

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins (e. World Ocean Day) til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 - 15.30 í Björtuloftum í Hörpu.

Á málþinginu verður fjallað um stöðu og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana, þar sem tengsl hafsins við loftslag, líffræðilega fjölbreytni, auðlindanýtingu og alþjóðlegt samstarf verða sífellt skýrari. Tvö meginþemu verða til umfjöllunar á málþinginu. Annars vegar verður farið yfir málefni hafsins á alþjóðavettvangi. Hins vegar verður fjallað um mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.

Hafið hefur ávallt verið undirstaða íslensks samfélags og efnahags. Íslendingar hafa því  um áratugaskeið lagt áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda hafsins, verndun hafsvæða og réttindi strandríkja. Á sama tíma hafa alþjóðlegir samningar og samstarf um málefni hafsins aldrei skipt meira máli en nú.

Dagsetningin hefur sérstaka skírskotun hér á landi þar sem hún fellur nærri íslenska Sjómannadeginum, sem í ár verður haldinn sunnudaginn 7. júní.

Dagsetning: Mánudaginn 8. júní
Tími: 13:00-15:30. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12.30.
Staðsetning: Björtuloft, Harpa
Aðgangur: Ókeypis
Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/UU02rMBQuc

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Heimsdagur hafsins er haldinn hátíðlegur 8. júní ár hvert og af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 - 15.30 í Björtuloftum í Hörpu. Hægt er að skrá sig á málþingið hér: https://forms.office.com/e/UU02rMBQuc

Heimsdagur hafsins 8. júní - málþing